Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Tómas segir Önnu ljúga og reyna að hylma yfir sín vandamál – Hafði engan áhuga að fá Helga aftur

Tómas Guðbjartsson læknir segir að Anna Dora Sæþórs­dóttir, fráfar­andi forseti Ferða­félagsins, fari með rangt mál í yfir­lýsingu sem hún birti í morgun. Í henni tilkynnti Anna Dóra að hún segði af sér sem forseti þar sem hún væri ráðþrota vegna „grófs kynferðis­legs ofbeldis“ innan félagsins.

Hún nefndi engin nöfn en Tómas telur ljóst að hann eigi að vera stjórnar­maðurinn sem hafi talaði fyrir því að Helgi Jóhannesson, lögmaður sem hefur ítrekað verið sakaður um kynferðisleg áreitni, fengi að koma aftur í stjórn.

Tómas segir í yfir­lýsingu á Facebook að það sé einfald­lega rangt. „Að gefnu tilefni þarf ég að leiðrétta alvarlegar ásakanir í minn garð sem tengjast afsögn fyrr­verandi forseta Ferða­félags Íslands, Önnu Dóru Sæþórs­dóttur. Ég hef aldrei lagt til að fyrrum stjórnar­maður tæki aftur sæti í stjórn félagsins, hann aldrei óskað eftir slíku, enda nýr stjórnar­maður kosinn í hans stað á síðasta aðalfundi félagsins,“ segir Tómas.

„Sami aðili hafði hins vegar sent stjórn félagsins erindi sl. vor þar sem hann óskaði eftir að fá að útskýra sína hlið á skyndi­legu brott­hvarfi úr stjórn í nóvember 2021. Taldi ég á stjórnar­fundi rétt að erindið fengi formlega umfjöllun stjórnar, sem forseti taldi ekki ástæðu til, en mér falið að koma á óformlegum fundi sem forseti hugðist ekki sækja.“

Að lokum gefur Tómas í skyn að Anna sé að hætta með látum til að breiða yfir eigin vanda. „Viðskilnaður forseta við stjórn og framkvæmda­stjóra Ferða­félags Íslands er sorglegt mál, ekki síst fyrir Ferða­félag Íslands, þar sem stað­reyndum er snúið á hvolf og umræðan færð frá þeim alvarlega samskipta­vanda sem litað hefur starf stjórnar sl. ár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning