Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Leyndardómurinn á bak við raunverulegar lífsbreytingar

Prófaðirðu að kalla fram drauma­lífið en mættir bara tómleika? Hér er ástæðan

Af hverju breytingar hræða taugakerfið
Af hverju breyt­ingar hræða tauga­kerfið Mynd: Unsplash/Mohammad Reza Razmpour Mamazii

Margir kannast við þá tilfinningu að hafa reynt allt til að gera lífið betra og farið eftir einu og öllu í sjálfs­hjálpar­bókinni. Eins og að búa til óskaborð (vision boards), endurtaka jákvæðar stað­festingar og reyna meðvitað að laða til sín gnægð og betri árangur. En hvað gerist þegar þessar aðferðir skila engu nema innri tómleika eða auknum dofa?

Áfalla­meðferðar­fræðingurinn Alexandra Schlotterbeck deildi nýverið sögu sinni af því hvernig hefð­bundin birtingar­vinna (e. manifestation) brást henni þar til hún áttaði sig á grund­vallamálinu: Þú getur ekki kallað fram drauma­lífið þitt ef tauga­kerfið þitt trúir því ekki að það sé öruggt að eiga það.

Þegar jákvæð hugsun mætir varnarkerfi líkamans

Þegar við reynum að þvinga fram breytingar eða sjá fyrir okkur mikinn árangur, rekst sú sýn oft á ósýni­legan vegg innra með okkur. Schlotterbeck lýsir þessu sem innri mótstöðu og dofa. Sem meðferðar­aðili bendir hún á að þessi dofi sé ekki bilun, heldur svokallaður „verndar­hluti“ (e. protector part) sem varð til þegar við vorum ung til að skýla okkur frá óbærilegum tilfinningum eða vonbrigðum.

Þetta rímar algjör­lega við kenningar um áföll og tengsl. Í klínískri sálfræði er viðurkennt að ef líkaminn hefur lært að skortur eða höfnun sé eðlilegt ástand, mun tauga­kerfið upplifa skyndi­lega vellíðan eða velgengni sem ógn eða óöryggi. Dr. Gabor Maté, þekktur sérfræðingur í áföllum, bendir á að áföll snúist ekki bara um það sem kemur fyrir okkur, heldur það sem gerist innra með okkur í kjölfarið þar á meðal aftenging við eigin líkama og tilfinningar. Þegar við reynum að „hugsa okkur rík“ en líkaminn er í vörn, vinnur líkaminn alltaf.

Þrjár æfingar til að brúa bilið á milli huga og líkama:

Til þess að birtingar­vinna beri árangur þarf að taka tauga­kerfið með í ferlið. Schlotnerbeck mælir með þremur hagnýtum æfingum sem byggja á áfalla­meðferð:

1. Sjónsköpun með skuggarakningu

Í stað þess að horfa einungis á jákvæðu sýnina, skaltu verja fimm mínútum í að sjá drauma­lífið fyrir þér og taka svo eftir því hvaða neikvæðu tilfinningar rísa upp. Er það sektar­kennd, sorg eða sjálfsefi? Samkvæmt kenningum Carl Jung um „skuggann“ (e. the shadow), er það sem við bældum niður í æsku lykillinn að því sem hamlar okkur í dag. Með því að varpa ljósi á mótstöðuna og spyrja: „Hvaða trú liggur hér að baki?“ byrjum við að leysa upp stíflurnar.

2. Vingast við „hlutina“ sem halda aftur af þér

Hér er stuðst við aðferða­fræði IFS (e. Internal Family Systems), sem Richard Schwartz þróaði. IFS gengur út á að persónu­leiki okkar sé samsettur úr mörgum „hlutum“ og sumir þeirra reyna að vernda okkur með því að halda okkur smáum. Í stað þess að berjast við mótstöðuna mælir Schlotterbeck með því að eiga samræður við þennan hluta: Hvað óttast hann að gerist ef þú breytist? Fyrir hverju er hann að vernda þig? Með því að sýna þessum varnar­hlutum samkennd og nota tvíhliða örvun (eins og vinstri-hægri bank eins og þekkist í EMDR-meðferð), fær tauga­kerfið skilaboð um að hættan sé liðin hjá.

3. Losun í gegnum líkamann (Somatic Release)

Hugsanir einar og sér geta ekki hreyft við djúpsætum áföllum. Eins og Dr. Bessel van der Kolk stað­festir í tímamótabók sinni The Body Keeps the Score, geymir líkaminn minningar um ótta og vanmátt í vöðvum og tauga­kerfi. Schlotterbeck mælir með samfelldri öndun (e. connected breathing) þar sem andað er beint inn í þá staði líkamans þar sem stíflur finnast (t.d. bakið eða brjóst­kassann). Með því að leyfa tilfinninga­bylgjunni, hvort sem það er grátur, skjálfti eða reiði að ná hámarki og hníga, getur líkaminn loksins meðtekið nýja og jákvæða trú: „Ég er örugg. Ég er verðug.“

Breytingar taka tíma

Það er mikilvægt að átta sig á því að þetta er ekki skyndi­lausn. Fyrir einstaklinga sem bera með sér tengsla­áföll getur það tekið 6 til 12 mánuði af stöðugri, meðvitundarri vinnu að endur­forrita tauga­kerfið. En með því að mæta sjálfum sér með dýpri og líkamlegri nálgun er hægt að opna á raun­verulegar, varanlegar breytingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“