Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Meira að segja Ólafur segir ofurlaun stærstu ógnina: „Margt vitlausara en að lækka forstjóralaunin“

Það hlýtur að teljast óvanalegt þegar Ólafur Stephensen, framkvæmda­stjóri Félags atvinnu­rekenda, er á því máli að ofurlaun yfirmanna á Íslandi séu eitt stærsta vandamál samtímans. Í aðsendri grein í Viðskipta­blaðið, sem hann birtir á vef félagsins, kallar hann eftir því að laun forstjóra verði lækkuð. Annars megi fyrirtæki búast við skelli í haust.

„Framundan eru erfiðar kjara­viðræður. Vaxandi verðbólga, afleiðing ytri áfalla, ógnar kaupmætti launa­fólks. Hækkandi húsnæðis­kostnaður hefur sömu áhrif. Margir stjórn­endur minni og meðal­stórra fyrir­tækja, sem eru uppi­staðan í Félagi atvinnu­rekenda – og í íslenzku atvinnu­lífi – hafa miklar áhyggjur af komandi misserum. Þeir hafa síðustu mánuði leitað allra leiða til að hagræða og komast hjá því að velta hækkun á nánast öllum aðföngum út í verðlagið, á sama tíma og þeir þurfa að takast á við tvær kjara­samnings­bundnar hækkanir á launum,“ segir Ólafur.

Hann segir að þrátt fyrir þetta sé lítið svigrúm til launa­hækkana. „Það er rétt hjá hagfræðingum sem unnu skýrslur fyrir þjóð­hagsráð að svigrúmið til launa­hækkana er lítið sem ekkert. Það er gömul saga og ný að nafn­launa­hækkanir, sem ekki byggjast á aukinni fram­leiðni atvinnu­lífsins, kynda undir verðbólgu en slá ekki á hana. Samningar sem gengju út á slíkar hækkanir myndu gera illt verra og skerða kaupmátt,“ segir Ólafur.

Hann segir algengt að hvetja stéttar­félög til ábyrgðar. Nú séu atvinnu­rekendur þó að sýna óábyrgð. „Undan­farin ár hafa verið tími mikillar kaupmáttar­aukningar. Við sem tölum máli atvinnu­rekenda höfðum gjarnan til ábyrgðar stéttar­félaga og hvetjum forystu­menn þeirra til að gera skynsamlegar kröfur sem stuðla að því að varðveita árangurinn en stofna honum ekki í hættu. Við verðum líka að gera kröfur til sjálfra okkar og forðast að ala á reiði, sundrungu og misklíð á vinnu­markaði. Fréttir af því að forstjórar stærstu fyrir­tækja landsins hækki í launum um margföld mánaðar­laun verka­fólks og að kaupauka­kerfi og ríflegir bónusar, sem hurfu eftir hrun, hafi verið endur­reist hafa vakið slík viðbrögð hjá verkalýðs­hreyfingunni. Afleiðingarnar eru líklegar til að bitna harðast á litlu og meðal­stóru fyrir­tækjunum,“ segir Ólafur.

Hann biðlar að lokum til stjórna fyrir­tækja um að lækka laun forstjóra. „Fleiri slík axarsköft væru ein stærsta ógnin við farsæla niður­stöðu kjara­viðræðna. Stjórnir stærstu fyrir­tækjanna gætu gert margt vitlausara en að lækka forstjóra­launin í aðdrag­anda kjara­samninga og setja bónusum og arðgreiðslum hófleg mörk.  Kraftar atvinnu­lífsins verða nú um stundir að beinast að stöðug­leika, bæði hvað varðar verðlag, hagnað og laun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið