Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Trausti segir að Reykjavík ætti að hætta að reka Strætó með Sjálfstæðisflokknum

Trausti Breið­fjörð Magnússon, borgar­fulltrúi Sósíal­ista, segir á Facebook að það sé löngu kominn tími á að Reykja­víkurborg hætti samstarfi með öðrum sveita­félögum í rekstri Strætó. Hann segir að núverandi fyrir­komulag sé ólýðræðislegt og best væri ef Reykjavík myndi halda úti Strætó, eins síns liðs. Sífellt fleiri kvarta nú undan misgáfulegum ákvörðunum stjórnar Strætó, en þar sitja fulltrúar sveit­félaga í kringum Reykjavík, flest allir Sjálfstæðis­menn, auk eins fulltrúa frá Reykjavík.

Pistill Trausta í heild sinni:

Nú þegar stjórn Strætó hefur enn eina ferðina ákveðið að skerða þjónustu innan borgarinnar er fínt að hefja umræðu um fyrir­komulag þess apparats.

Í stjórn Strætó bs sitja 6 fulltrúar frá hverju sveitar­félagi á höfuð­borgar­svæðinu. Atkvæða­vægi þeirra á að miðast við íbúa­fjölda. Reykjavík er með meirihluta íbúa, en samt er það ekki nóg til þess að hafa meirihluta­vægi.

Þetta fyrir­komulag er því í reynd ólýðræðislegt. Auk þess hafa borgar­fulltrúar aðrir en sá eini sem situr í stjórninni lítil sem engin áhrif á fyrir­komulag Strætó. Finnst okkur núverandi fyrir­komulag heppilegt til þess að auka ánægju íbúa eða að hlustað sé á þeirra raddir?

Þegar byggða­samlagið er ekki að þjóna, auka ánægju né notkun Strætó er kominn tími til að staldra við og spyrja hvort það sé kominn tími á nýtt fyrir­komulag.

Hvers vegna ætti Reykja­víkurborg ekki einfald­lega að reka sinn eigin Strætó eins og áður var gert með fínum árangri? Vagn­stjórar sem við höfum rætt við voru töluvert ánægðari með það fyrir­komulag. Auk þess sátu þeir í stjórn og gátu haft áhrif á uppbyggingu leiðar­kerfisins. Í dag er lítið sem ekkert hlustað á þá.

Núverandi módel byggða­samlagsins byggir á nýfrjálshyggju­hugmyndum. Störfum vagn­stjóra er útvistað með tilheyrandi lækkun launa, leiðum er lokað sem “eru ekki að borga sig” og það þykir mikið hneyksli ef Strætó er ”rekinn með tapi”.

Það vantar nýja grunnuhugsun um það hvernig við horfum til almennings­samgangna. Þetta er þjónusta, ekki fyrirtæki og því á ávallt að setja þá sem þiggja hana í fyrsta sæti. Ef það er ekki hægt að breyta Strætó bs innan frá og losa það undan fáranlega skamm­sýnni hugmynda­fræði um “hagkvæmni og skilvirkni í rekstri” þá ætti Reykjavík einfald­lega að slíta sig frá þeim félags­skap

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning