Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Harmleikurinn á jólaballinu í Skildi: „Sem hendi væri veifað stóð jólatréð þegar í björtu báli“

Það var á milli jóla og nýárs sem mikill fjöldi prúð­búinna barna var á leið til jóla­skemmtunar í samkomu­húsinu Skildi í Keflavík. Það var eftir­vænting og hátíð­leiki í loftinu þegar börnin tóku að streyma inn í samkomu­húsið, ásamt 20 til 30 full­orðnum. Alls voru um 200 þar saman­komnir, þar af 170 til 180 börn. Í miðjum húskynnunum var stórt og fallegt jólatré, sem börnin dönsuðu í kringum; uppfull af kátínu eins og vaninn er á slíkum skemmtunum.

Gleðin átti hins vegar eftir að breytast í martröð. Í einu vetfangi stóð jólatréð sem börnin dönsuðu og sungu í kringum í ljósum logum.

Elds­voðinn sem varð í Samkomu­húsinu í Keflavík að kvöldi dags þann 30. desember árið 1935 er sá mann­skæðasti í íslenskri sögu, allt frá alda­mótunum 1900.

Kviknaði í út frá bréfpoka

Eftir­farandi er lýsing á atburðum kvöldsins í samkomu­húsinu, í Nýja Dagblaðinu, daginn eftir hinn hrikalega atburð.

„Jólatrésskemmtun var haldin í Keflavík í gærkveldi í samkomuhúsi þorpsins. Um 10-leytið datt bréfpoki ofan á eitt kertið og kviknaði í honum. Og sem hendi væri veifað stóð jólatréð þegar í björtu báli, með svo miklum ofsa, að eldurinn læsti sig þegar í húsið, sem var gamalt og byggt sem verst má verða, þegar slíkt óhapp ber að höndum, eftir því, sem blaðinu hefir verið tjáð annarstaðar að. En húsið var svo byggt, að utan á trégrind var neglt bárujárni, en innan á grindina rimlum, yfir þá strengdur strigi, en aðeins pappír límdur á hann. Enda fuðraði húsið þegar upp, svo að alelda mátti heita á augna­bliki.“

Lýsingarnar í Nýja Dagblaðinu eru hafðar eftir síma­stöðvar­verðinum í Keflavík, Ingibjörgu Ólafs­dóttur, kaup­manninum Ingimundi Jónssyni og Helga Guðmunds­syni, lækni. Þær gefa skýra mynd af atburðum kvöldsins; kvölds sem átti að vera uppfullt af hátíð­leika og fögnuði, en umbreyttist þess í stað í harmleik.

Hurðin lokaðist

„Þarna voru inni 170—180 börn og auk þess full­orðnir, svo að alls er talið, að yfir 200 hafi verið í húsinu. Þeim ógnum, sem nú dundu yfir, er erfiðara að lýsa en að gera sér í hugarlund, og skynjar þó enginn, sem ekki ratar í slíkt,“ segir í lýsingum Nýja Dagblaðsins.

„Auðvitað þustu allir til dyra og glugga, eða í kjallara til útgöngu. En svo ógæfulega virðist hafa til tekizt, að því er sumir álíta, að útidyrahurð hafi lokazt, um stund, er ruðzt var á dyr, og slysið því orðið ægilegra en annars hefði kannske mátt verða. Þrátt fyrir þetta virðast litlar eða engar limlestingar hafa orðið af sjálfum troðningnum, en einn drengur a.m.k., hafði skorizt töluvert af rúðubrotum.“

Blaðið kom út morguninn eftir brunann. Blaðamenn höfðu náð tali af Helga Guðmunds­syni lækni um nóttina, en þá var talið að um 20 manns hefðu brennst í elds­voðanum, en sex barna var þá saknað og talið að þau hefðu brunnið inni. Um nóttina höfðu þeir sem verst voru brenndir verið fluttir á sjúkrahús í Reykjavík, flestir á Landakot. Seinna varð ljóst að tíu höfðu látist í elds­voðanum, þar af sjö börn.

Samkomu­húsið brann til kaldra kola á svip­stundu, miðað við lýsingar.

„Það var eign ung mennafélagsins í Keflavík, sem af góðum hug efndi til skemmtunarinnar, sem endaði svo átakanlega,“ segir í fréttinni.

„Jólatréð fuðraði upp“

Sigur­björn Reynir Eiríksson var einn þeirra sem slasaðist í brunanum en lifði af. Hann kom fram í viðtali við RÚV árið 2015, þegar 80 ár voru liðin frá hinum hræðilega atburði. Sigur­björn var níu ára gamall þegar eldurinn kviknaði í Skildi.

„Ég man eftir því að eitt kertið féll niður. Við vorum að dansa í kringum jólatréð. Það féll niður og byrjaði að loga. Maður bjóst ekki við að þetta yrði eins mikið og þetta varð. En jólatréð fuðraði upp. Það voru venjuleg kerti á trénu og það náði upp í loft og þetta bara fuðraði upp. Það varð alelda á nokkrum sekúndum,“ sagði Sigur­björn Reynir í viðtalinu við RÚV.

Sigur­björn Reynir lýsti troðningnum sem myndaðist við dyrnar þegar reynt var að rýma húsið. Hann rifjaði upp að útgöngudyr hafi verið sitt hvoru megin í salnum. Bekkjaröð hafi alveg lokað öðrum dyrunum. Það gerði rýminguna mun erfiðari að dyrnar sem um ræðir opnuðust inn.

„Það tók tíma að opna þær og rífa bekkina frá. Við krakkarnir gátum það ekki þannig að ég held að presturinn hafi gert það. En það var líka troðningur þegar komið var fram í anddyrið. Þar opnuðust dyrnar líka inn. Og allir að reyna að komast út,“ sagði hann. Eftir elds­voðann var lögum um brunamál breytt þannig að dyr á leikhúsum og samkomu­húsum skyldu ávallt opnast út.

Margir slösuðust og hlutu alvarleg brunasár í elds­voðanum. Sigur­björn var einn þeirra. Hann var sendur á Landakot og dvaldi þar í heilt ár. Hann brenndist á höndum, hnakka og á eyra.

Atburðurinn sveipaður þögn

Árið 1991 var minnis­varði um brunann í Skildi reistur þar sem samkomu­húsið hafði staðið. Hann var reistur af aðstand­endum fórnar­lamba elds­voðans.

Dagný Gísla­dóttir gaf út bók um brunann í Skildi árið 2010. Í henni má meðal annars finna viðtöl við fólk sem lifði elds­voðann. Dagný sagði í viðtali við RÚV um bókina að hinn hörmulegi atburður hafi í langan tíma verið sveipaður þögn meðal íbúa í Keflavík. Margir sem hún ræddi við fyrir skrifin hafi tjáð henni það sama – að bruninn hafi ekki verið ræddur á þeirra heimili.

Það voru ýmsir full­orðnir sem drýgðu hetju­dáðir við björgunar­störf á vettvangi, til að mynda einstaklingar sem voru inni í húsinu og fórnuðu lífi og limum við að reyna að koma börnunum út. Má þar til dæmis nefna séra Eirík Brynjólfsson, en það er hann sem Sigur­björn Reynir talaði um að hafi rifið bekkina frá annarri útgöngu­leiðinni og opnað dyrnar. Þegar séra Eiríkur fór, síðastur manna, út úr samkomu­húsinu stóð hár hans í ljósum logum. Börnin hans fengu ekki að vita almennilega um elds­voðann eða hetjudáð föður þeirra fyrr en hann var látinn. Hann talaði aldrei um harm­leikinn í Skildi.

Séra Eiríkur Brynj­ólfs­son. Mynd/skjá­skot RÚV.

Þau sem létust í elds­voðanum voru:

Kristín S. Halldórs­dóttir, 76 ára

Guðrún Eiríks­dóttir, 61 ára

Loftur Hlöðver Kristinsson, 10 ára

Borgar Breið­fjörð Björnsson, 6 ára

Guðbjörg Sigur­gísladóttir, 7 ára

Sólveig Helga Guðmunds­dóttir, 7 ára

Anna Guðmunds­dóttir, 10 ára

Árni Jóhann Júlíusson, 8 ára

Þóra Eyjólfs­dóttir, 71 árs

Alma Svein­björg Þórðar­dóttir, 10 ára (Alma lést 28. mars 1936)

Heimildir:

Hræðilegasti eldsvoði í manna minnum – Nýja Dagblaðið

Lifði af mann­skæðasta eldsvoða 20. aldar – RÚV

Minnis­varði um Skjaldar­brunann – Reykja­nesbær

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið