Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Steinar skammar Ingólf Bjarna og Ríkisútvarpið: „Er að flækjast fyrir flýjandi konum og börnum“

Ingólfur Barni Sigfússon fréttamaður.
Ingólfur Barni Sig­fús­son frétta­maður. Mynd: Erla Hlynsdóttir

Steinar Sveinsson leið­sögumaður gagnrýnir það hvers vegna RÚV ákvað að senda Ingólf Bjarna Sigfússon frétta­mann og tökumann með honum til lands þar sem stríð er yfir­vofandi. Að hans mati höfðu þeir lítið sem ekkert fram að færa í frétta­flutningnum og gerðu fátt annað en flækjast fyrir flýjandi fólki. Steinar fjallar um málið í færslum á Facebook-síðu sinni. Við skulum grípa niður í færslu hans um málið:
„Það er hið undarlegasta brölt hjá litla RÚV á litla Íslandi að senda frétta- og tökumann í land þar sem stríð er yfir­vofandi. Frétta­maðurinn hafði í raun aldrei neitt sérstakt að segja sem bætti einhverju við allt sem kom fram í stærri og þroskaðri alþjóð­legum fjöl­miðlum, eða sem aðrir íslenskir fjöl­miðlar höfðu eftir Íslendingum búsettum í Úkraínu og gjör­þekkja allar aðstæður í landinu. Í raun gerði frétta­maðurinn lítið annað en að bresta nánast í grát, og fljótlega fóru allar fréttir að snúast um hans eigin upplifun og tilfinningalíf og nú síðast flótta hans af vettvangi, þar sem hann virðist í bílaröð meðal almennings eingöngu vera að þvælast fyrir íbúum landsins sem eru á flótta.
Steinar segir að nær væri, fyrst frétta­maðurinn er þó kominn á staðinn, og alvöru atburðir eru brostnir á, að hann væri áfram í höfuð­borginni ásamt alþjóð­legu liði frétta­manna. „Sem eflaust er staðsett á nokkuð öruggu hóteli sem báðir stríðandi aðilar vita af, frekar en að hann sé á óskipulögðum flótta að flækjast fyrir flýjandi konum og börnum.“Steinar stingur svo aftur niður penna þegar Ingólfur Bjarni og Ingvar Haukur Guðmundsson tökumaður eru komnir á flótta frá Kænugarði. Um flóttann sem hann kallar „undarlegheita­ferðalag RÚV“ skrifar hann:

Steinar Sveins­son er ómyrkur í máli þar sem hann fjallar um ferða­lag fréttam­ans RÚV.

„Eftir ómark­vissar ,,fréttir” og grát­klökkar yfir­lýsingar um tilfinningalegt uppnám sitt, sem engu bættu við til að upplýsa íslenskan almenning og ánauðar­greiðendur að RÚV um stöðu mála fram yfir það sem alþjóð­legir fjöl­miðlar greina frá, þá var lagt á flótta og flækst fyrir heima­mönnum á raun­verulegum flótta, konum og börnum. Til að forða sér lýsir frétta­maðurinn því hvernig hann og íslenski töku­maðurinn hafi keypt bíl og útvegað sér bensín, sem hann lýsir blygðunar­laust að sé af skornum skammti, eðlilega, enda stríðs­ástand“.

Teymið bætti engu við inn­sýn íslensks almenn­ings

Steinar segir það vera í samræmi við íslenska blaða­mennsku að flest innleggin snúist um sjálf­hverfu íslenskra frétta­manna; frétta­maður taki viðtal við frétta­mann um hvernig hann hefur það. Frétta­maðurinn sé í aðal­hlutverki.

„RÚV og íslenska frétta­teymið hefur ekki gert úkraínsku þjóðinni nokkurn greiða með þessari sjálf­hverfu Bjarmalandsför sinni. Teymið bætti engu við innsýn íslensks almennings í ástandið né upplýsti af viti um stöðu mála heldur þvældist ráðalaust um götur Kænugarðs og gerði ómarkviss innslög. Svo á flótta sínum þvældist teymið fyrir konum og börnum á raun­verulegum flótta frá heim­kynnum sínum, sem jafnvel voru að skilja við menn sína sem urðu eftir til að berjast, tók undir sig farartæki og keypti bensín sem er af skornum skammti og aðrir á flótta gátu þá ekki notað. Eflaust hefur frétta­teymi RÚV yfirboðið síðustu bensín­dropana í krafti kaup­máttar og dagpeninga frá RÚV, þannig að þeir nýttust ekki flótta­fólkinu …“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Ofurkrúttleg íbúð í Þingholtunum komin á sölu
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá