Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Í góðum málum/Í slæmum málum

Í góðum málum

Þjóðhátíð var haldin í Vestmanna­eyjum, í fyrsta sinn síðan 2019, nú um verslunar­manna­helgina. Má því með sanni segja að Eyja­peyjar, -meyjar og gestir þeirra séu í góðum málum. Hátíðin fór að mestu leyti mjög vel fram og er það mál manna að langt sé síðan hún heppnaðist svona vel. Gæslan var öflug á svæðinu enda ekki vanþörf á þegar yfir 10.000 manns mæta á frekar lítið svæði og margir með áfengi við hönd. Veðrið var hið ágætasta og heppnuðust skemmtiatriðin afar vel og fundu flestir gestir, af öllum kynjum og öllum aldri, eitthvað við sitt hæfi á eyjunni fögru. Erlendir ferða­langar komust í fréttirnar þegar þeir mættu algjör­lega glærir í Herjólfsdal í upphafi hátíðarinnar og vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið. Þeir höfðu ætlað að hafa það rólegt í Vestmanna­eyjum þessa helgina eftir að hafa verið á stórri útihátíð erlendis. Slíkar fréttir eru alltaf fyndnar og því tilvalið að leyfa henni að fylgja með.

Í slæmum málum

Grind­víkingar og nærsveit­ungar eru í frekar slæmum málum eða voru það að minnsta kosti er þetta var ritað. Undan­farið hefur jörð skolfið af slíku offorsi að hlutir hafa hrunið úr hillum og loft­plötur fallið úr verslunar­miðstöðvum. Já, eða einni réttara sagt. Hver stór­skjálftinn á fætur öðrum hefur skekið Grindavík og nágrenni og hafa hinir mestu harðjaxlar fengið sting fyrir hjartað enda skjálftarnir á köflum stærri og lengri en í venjulegu skjálfta­árferði. Þá hafa höfuð­borgarbúar keppst við að segja frá því á Facebook að þeir hafi fundið fyrir þessum og hinum skjálfta, sem gleður alltaf vini þeirra og verður aldrei þreytt. Minna skjálftarnir á undanfara eldgossins í Geldinga­dölum, en rödd skynseminnar, Magnús Tumi Guðmundsson, jarð­fræðingur og prófessor, hefur sagt af sinni alkunnu rósemd, að annaðhvort gjósi eða ekki. Svona sirka. Auðvitað er það rétt hjá honum, enda má segja þetta um flest ef ekki allt í lífinu, annaðhvort gerist það eða ekki.

Sjá má blaðið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið