Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ingunn sú eina sem stoppaði þegar tvær konur slösuðust í bílveltu: „Nístingskuldi og ömurlegheit“

Ingunn Bylgja Einars­dóttir er undrandi á þeim sem keyrðu framhjá slæmri bílveltu án þess að stoppa í gær.

Ingunn Bylgja var að keyra á Möðru­dalsöræfum í gær þegar hún kom að bílslysi en bíll hafði oltið illa. Var bíllinn að hennar sögn í klessu og tvær konur skríðandi í kringum hann þegar hana bar að. Ingunn stökk út úr bílnum og hringdi strax á 112. Nokkrir bílar keyrðu framhjá slys­staðnum án þess að stoppa. „Þar sem ég var að hlaupa flughálan slakkann, með 112 í eyrunum, heyrði ég og fann að það keyrði bíll framhjá. Á þessari sömu stundu lá önnur konan í jörðinni og hin að hamast við bílinn. Ég bara skildi þetta ekki. Fleiri bílar fóru hjá meðan ég mataði 112 og reyndi að sinna báðum konunum sem voru bæði slasaðar og í miklu áfalli. Nístings­kuldi og ömurlegheit,“ sagði Ingunn í samtali við Mannlíf.

Byrjaði Ingunn á að taka þær upp í bílinn sinn og keyra að gatna­mótum við Vopna­fjörð þar sem þær biðu eftir sjúkrabíl. „Þegar þeim var orðið heitt, tók ég þær út í ástands­skoðun og allt nokkuð gott miðað við allar velturnar. Bar samt á minnis­leysi og panikki,“ sagði Ingunn og bætti við að vegna þess að enginn stoppaði, hefði hún þurft gert þetta allt ein, ástands­skoða þær, spyrja þær spjörunum úr varðandi slysið, áverka, líðan og miðla á 112. „Þegar það tókst, stoppaði loks fyrsti bíllinn. Og auðvitað voru það útlendingar.“

Að lokum sagði hún að þrátt fyrir allt hafi stærsti ótti þeirra þó ekki snúið að heilsunni: „Þetta voru sambýlis­konur frá Georgíu og þær voru svo hræddar um að geta ekki borgað lögreglu, sjúkrabíl eða læknis­þjónustu. Grétu bara og grétu útaf því. Ég bað þær lengstra orða að hafa ekki áhyggjur af því. Önnur var ferða­tryggð og hin búin að borga skatta í sirka fimm mánuði hérna,“ sagði Ingunn og vildi bæta við í lok samtalsins þakklætinu til viðbragðs­aðilanna: „Elsku fólkið í lögreglunni og sjúkra­bílnum voru til fyrir­myndar.“

Þess ber að geta að hver sá sem kemur að slysi og veit að fólk er í neyð, ber skylda samkvæmt íslenskum lögum að veita hjálp. Samkvæmt Samgöngu­stofu eru eftir­farandi atriði réttu viðbrögðin komi maður að slysi og í þessari röð:

1. Tryggja öryggi á slysstað og koma í veg fyrir meiri skaða.

2. Meta umfang slyssins og veita neyðar­hjálp sé þess þörf.

3. Tilkynna um slys í 112 og kalla eftir nauðsynlegri hjálp.

4. Að veita skyndi­hjálp

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning