Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Svarar Gísla Marteini fullum hálsi: „Skoðanir um þungunarrof hafa ekkert með fasisma að gera“

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson, aðstoða­maður dómsmála­ráðherra skýtur föstum skotum á Gísla Martein í nýrri Facebook-færslu.

Brynjar hefur staðið í ströngu á samfélags­miðlum þessa dagana þar sem skotin hafa flogið hingað og þangað og virðist enginn óhultur. Færsla sem Gísli Marteinn Baldursson, fjölmiðla­maður skrifaði fór fyrir brjóstið á Brynjari sem svaraði í löngu máli á Facebook. Færsla Gísla er eftir­farandi:

„Aðstoðar­maður dómsmála­ráðherra sem greiddi atkvæði gegn þungunar­rofi kvenna, vildi vísa 300 manns úr landi í sumar, vill nýja innflytjenda­löggjöf og valdefla lögregluna sakar @AndriMagnason um fasisma þegar Andri spyr hvort blaðafólk á Mbl sé sátt við afneitun í loftslags­málum.“

Brynjar uppnefnir Gísla Martein ítrekað í færslu inni en þar kallar hann Gísla ýmist sjónvarps­manninn síkáta, léttlynda eða glaðlynda.

„Sjónvarps­maðurinn síkáti sendi mér pillu á miðli frjáls­lynda og víðsýna fólksins, sem einkum berst fyrir þöggun og útilokun þeirra sem eru ósammála þeim. Svona getur tilveran verið mótsagna­kennd.

Glaðlynda sjónvarps­manninum finnst skrítið að ég hafi ýjað að fasískri hegðun rithöfundar úti í bæ, sem vildi að starfs­menn Moggans beittu þöggunar – og útilokunar­aðgerðum vegna viðhorfs ritstórans í loftslags­málum, þar sem ég hafi greitt atkvæði gegn síðasta þungunar­rofs­frumvarpi, vildi vísa 300 manns af landinu og nýja innflytjenda löggjöf og vildi þar að auki valdefla lögregluna,“ byrjar Brynjar á að skrifa í færslunni og heldur svo áfram.

„Léttlyndi sjónvarps­maðurinn áttar sig ekki á því frekar en rithöfundurinn úti í bæ að fasismi er fyrst og fremst hegðun en ekki það að einhver er ósammála manni. Skoðanir um þungunarrof hafa ekkert með fasisma að gera. Það er ekki fasísk skoðun að þegar fóstur er orðið að barni í móður­kviði hafi það einhvern rétt. Að vísa fólki úr landi sem hefur lögum samkvæmt ekki heimild til að vera er ekki fasismi eða breytingar á lögum um útlendinga í samræmi við lög í evrópu­löndum. Að veita lögreglu svipaðar heimildir og í öðrum löndum til að fram­fylgja lögum og koma í veg fyrir skipulagða glæpa­starfsemi er ekki fasismi.“

Næst lýsir Brynjar áhyggjum sínum yfir fasískri hegðun í samfélaginu.

„Vissulega er fasismi ekki bara hegðun og hugarfar. Til er fasísk hugmynda­fræði sem tekur úr sambandi réttindi borg­aranna gagnvart yfir­völdum. Við erum hins vegar með stjórnar­skrá sem verndar þau réttindi. Við þurfum því ekki að hafa áhyggjur að því og áhyggjur mínar beinast að fasískri hegðun margra í frjálsa samfélaginu, einkum þeirra sem reyna að selja sig sem frjáls­lynda og víðsýna. Þar eru mest áberandi elítu­liðið úr fjöl­miðlum og lista-og menningar­geiranum sem finnst það sjálfsögð réttindi þeirra að skatt­greiðendur tryggi afkomu þeirra. Gott ef það eru ekki mann­réttindi.“

Því næst líkir Brynjar saman þeim Gísla og Sveini Andra sem hann hefur einnig átt í deilum við á Facebook nýverið.

„Ofur­hressi sjónvarps­maðurinn er ekki ólíkur stjörnu­lögmanninum eina sanna. Voru báðir virkir í Sjálfstæðis­flokknum en þegar þeim var hafnað í prófkjöri brast út einhver heift sem bara magnast með árunum. Þeir urðu allt í einu svo gáfaðir og réttsýnir. Um það er hins vegar talsverður ágrein­ingur. Það er ljóst að við sjónvarps­maðurinn hressi eigum bara eitt sameiginlegt en það er við erum alltaf jafn unglegir í útliti. Það sama verður ekki sagt um stjörnu­lögmanninn.“

Lokaorð Brynjars eru full af kaldhæðni eins og reyndar færslan öll.

„Það er mikið frelsi að geta fjasað ábyrgðar­laust í góða veðrinu í Miðjarðar­hafi á launum frá skatt­greiðendum meðan vinnu­lúnir rithöfundar og sjónvarps­menn híma heima í kuldanum með kvíða yfir því að þeir muni stikna úr hita innan fárra ára.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið