Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Nú er haustið heldur betur komið

Kona með þvott
Kona með þvott Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Lola Azizada/Unsplash

Haustið er gengið í garð og með kólnandi veðri fara hlýrri flíkur og heimilis­vörur aftur í notkun eftir sumarið. Kasmír­peysur, regnkápur, inniskór og hlý teppi koma úr geymslum en ýmislegt af þessu þarfnast þrifa áður en það er tekið í reglulega notkun.

Good Housekeeping hefur tekið saman sex hluti sem gjarnan gleymast í þvottinum og ráðleggingar um hvernig best sé að halda þeim hreinum án þess að valda skemmdum.

1. Baðsloppar

Baðsloppar geta safnað í sig svita, lykt og bakteríum og ættu þeir sem nota slopp reglulega að þvo hann að minnsta kosti einu sinni í viku. Mælt er með því að þvo hann við hæsta hitastig sem þvotta­merkingar leyfa og snúa honum á rönguna.

Mýkingar­efni ætti að forðast þar sem það getur dregið úr raka­drægni efnisins. Loðna sloppa má setja í þurrkara ef þvotta­merkingar leyfa.

2. Regnkápur

Margir þvo regnkápur sjaldan eða aldrei þótt þær séu mikið notaðar. Almennt er ráðlagt að þvo regnkápu eftir um tíu skipti í notkun.

Mikilvægt er að fylgja þvotta­leið­beiningum fram­leiðanda þar sem vatnsheld húðun getur verið viðkvæm. Ef sérstakar leið­beiningar vantar er yfirleitt öruggast að nota kalt og milt þvotta­kerfi ásamt þvotta­efni sem ætlað er vatns­heldum fatnaði. Mýkingar­efni getur skemmt vatns­helda húðun.

3. Rafmagnsteppi

Rafmagns­teppi geta safnað í sig svita og óhreinindi en vegna rafbúnaðarins þarf að gæta sérstakrar varúðar við þrif.

Fylgja skal leið­beiningum fram­leiðanda nákvæmlega. Sum teppi mega fara í þvottavél eftir að stjórn­búnaður hefur verið fjar­lægður. Þá er gjarnan mælt með köldu og viðkvæmu þvotta­kerfi og litlum eða engum snúningi. Teppið verður að vera fullkomlega þurrt áður en það er tengt aftur við rafmagn.

4. Kasmírpeysur

Kasmír er viðkvæmt efni og rangur þvottur getur auðveldlega skemmt flíkina. Nota skal þvotta­efni fyrir ull og viðkvæman fatnað og fylgja alltaf þvotta­merkingum.

Ef vélar­þvottur er leyfður er best að snúa peysunni á rönguna, setja hana í þvotta­poka og nota kalt ullar­kerfi með mjög litlum snúningi. Peysuna ætti síðan að þurrka liggjandi og móta reglulega meðan hún þornar.

5. Rússkinnsskór

Rússkinnsskór eiga ekki heima í þvotta­vélinni. Leyfa skal þeim að þorna áður en óhreinindi eru fjarlægð með sérstökum rússkinnsbursta. Erfiðari bletti má meðhöndla með hreinsi­efni sem ætlað er rússkinni.

Þegar skórnir eru orðnir hreinir getur verið skynsamlegt að bera á þá varnarúða gegn vatni og óhreinindum.

6. Inniskór

Inniskór eru gjarnan mikið notaðir yfir kaldari mánuðina en gleymast auðveldlega þegar kemur að þrifum.

Sumir mega fara í þvottavél en aðra þarf að bletta­hreinsa með volgu sápuvatni og mjúkum bursta eða örtrefja­klút. Mælt er með því að þrífa inniskó um einu sinni í mánuði og oftar ef þeir eru reglulega notaðir berfættir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“