Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Birta fyrirsæta: „Allar stelpurnar voru ljóshærðar með blá augu og mér fannst þær svo glæsilegar“

Birta Abiba Þórhallsdóttir.
Birta Abiba Þór­halls­dóttir. Mynd: Skjáskot/Eskimos.fr

„Allar stelpurnar voru ljós­hærðar með blá augu og mér fannst þær svo glæsilegar. Ég hugsaði, bíddu hvernig get ég keppt við þetta? Ég lít ekkert út eins og þær.“ 

Þetta segir Birta Abiba Þórhalls­dóttir, fyrirsæta í viðtali hjá skandinavísku útgáfu tísku­tímaritsins Vogue. Birta var krýnd Miss Universe Iceland árið 2019, en í viðtalinu ræðir hún um fordóma sem hún hefur orðið fyrir á Íslandi vegna húðlitar síns.

Birta segir að það hafi verið erfitt að alast upp sem hluti af minnihlutahóp á Íslandi og að sumt hafi reynst henni erfiðara en annað. Þá segir hún að það hafi verið sérstak­lega erfitt að takast á við þá fordóma sem sýndir voru þegar skilti með mynd af henni á hafði orðið fyrir skemmdar­verki. Á myndinni var búið að teikna merki nýnasista yfir augu hennar.

Birta ræðir um það hvað það hafi skipt hana miklu máli að geta verið fyrirmynd fyrir aðra Íslendinga og Skandinavíubúa sem eru svartir eða af blönduðum uppruna.

Eins og kunnug er, var Birta fyrsta konan, sem ekki er hvít á hörund, til að vinna keppnina Miss Universe Iceland er hún hneppti titilinn árið 2019. Hún hafi í kjölfarið náð inn á lista tíu efstu í Ungfrú heimur keppninni.

Eftir að Birta komast inn í Miss Universe Iceland keppnina var slagurinn þó ekki unninn.

Fólk hafi haft á orði að Birta ætti að slétta á sér hárið og ætti kannski að sleppa því að fara í brúnku­sprautu með hinum stelpunum. Birta hafi þó látið þessar athuga­semdir sem vind um eyru þjóta og var ákveðin í því að leyfa sínu náttúru­lega hári – með afró-krullum – að njóta sín á sviðinu.

„Jafnvel þó ég myndi ekki sigra, þá mun einhver lítil stelpa þarna úti sjá mig í fegurðar­samkeppninni og hugsa – þetta er eins og mitt hár.“

Birta Abiba Þór­halls­dóttir.

Var uppnefnd Birta Api

Birta ræðir um óöryggið og segir að fordómarnir vegna húðlitar hennar hafi byrjað strax í leikskóla. „Þegar ég var yngri kölluðu börnin í leik­skólanum mig kókó því ég var brún eins og kókópuffs. Í heilum árgangi af um 200 börnin var ég sú eina sem var brún.“  Hún segist meðal annar hafa verið hikandi við að taka þátt í Ungfrú Ísland keppninni, þar sem hún var ekki viss um að það væri pláss í keppninni fyrir manneskju með annan húðlit en hvítan.

Á unglings­aldri urðu orðsendingarnar andstyggilegri sem átti eftir að hafa virkilega djúpstæð áhrif á mig. Hún segir jafnframt frá því að hún hafi oft á tíðum verið uppnefnd Birta api, en hún heitir Birta Abiba og Abiba hljómar eins og Api.

Birta Abiba Þór­halls­dóttir.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið