Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ragna á Laugabóli jarðsungin: Ljósið í Djúpinu er slokknað

Ragna Aðalsteinsdóttir á Laugabóli.
Ragna Aðal­steins­dóttir á Lauga­bóli. Mynd: Róbert Reynisson.

Hún Ragna Aðal­steins­dóttir á Laugabóli er öll eftir langa, ævi og á stundum erfiða. Hún varð 97 ára og eflaust komin með nóg af verald­legu vafstri. Síðast hitti ég hana á dvalar­heimilinu Eyri á Ísafirði í sumar sem leið. Hún var skýr, þrátt fyrir háan aldur. Eins og venjulega var hún að bíða eftir að komast heim í sveitina sína. Þangað leitaði hugurinn alltaf, heim í dalinn þar sem hún hafði lifað sínar bestur stundir en jafnframt gengið í gegnum það svart­nætti sem fylgir því að missa börn, barnabörn og aðra ástvini.

Ragna var vinur vina sinna en gríðar­lega föst fyrir þegar henni þótti embættis­menn eða ráðamenn brjóta gegn almennum borgurum. Þá var Rögnu að mæta.

Við kynntumst fyrst í gegnum skóla­systur mína, dóttur hennar, Bellu Vestfjörð. Þá náðum við ekkert sérstak­lega vel saman. Kynslóða­bilið þvældist fyrir. En síðan þróuðust mál þannig að ég fór að koma reglulega við hjá henni á Laugabóli og við urðum perlu­vinir. Það skorti aldrei umræðu­efnið í eldhúsinu á Laugabóli. Ragna var fróð og víðlesin með einbeittar skoðanir á heims­málunum jafnt og því sem gerðist á Íslandi.

Á Laugabóli var gjarnan margt í heimili eftir að börnin hennar voru farin að heiman. Þar átti óreglu­fólk skjól frá hörðum heimi vímu­efnanna, svo lengi sem þau féllust á að vera allsgáð og leggja Rögnu lið við búskapinn. Fjölmargir einstaklingar leituðu í ljósið í Djúpinu til að ná áttum og byggja sig upp aftur. Ragna rak í raun meðferðar­stofnun en án allra styrkja. Mannúðar­störf hennar voru unnin af hjarta­gæsku og örlæti. Hún átti nóg og gaf með sér.

Sorgin var sjaldnast langt undan á Laugabóli. Ragna eignaðist þrjú börn, Garðar Smára, Gunnar Bjarka og Aðalheiði Bellu sem öll báru ættar­nafnið Vestfjörð. Hún kom börnum sínum öllum til manns. En svo dundi áfallið yfir. Bjarki starfaði sem lögreglu­þjónn í Bolungarvík. Hann var að sinna starfi sínu 8. mars 1989 á Óshlíð þegar snjóflóð hreif hann með sér á haf út. Lík hans fannst aldrei. Yngsti sonur Rögnu varð aðeins 25 ára þegar líf hans var á enda. Harmur Rögnu var gríðar­legur en þetta varð aðeins upphafið að raunasögu hennar.

Sex árum eftir fráfall Bjarka féll snjó­flóðið ægilega á Súðavík með skelfi­legum afleiðingum. Á meðal þeirra sem fórust var Bella, dóttir Rögnu, og Petrea dóttir hennar. Bella náði ekki að verða fertug og litla stúlkan var aðeins 13 ára. Svart­nættið sem fylgdi því að missa annað barn sitt og barnabarn var ægilegt. Bóndinn á Laugabóli þurfti á öllu sínu að halda til að missa ekki alveg lífs­viljann í þeim ömurlega veruleika. Það liðu aðeins fimm ár þar til komið var að næsta áfalli í lífi Rögnu og hennar fólks. Ragnar, sonur Bjarka, fórst í bílslysi í Súðavík árið 2001, aðeins 18 ára.

Ragna stóð upprétt þrátt fyrir áföll sem eru af þeirri stærðar­gráðu að enginn ætti að þurfa að ganga í gegnum slíkt. Þeir tímar komu að hún var við það að gefast upp og hún leitaði sér hjálpar á geðdeild. Hún var öldungis ófeimin að ræða þau mál og sagði gestum og gangandi að hún væri að koma af geðdeild. Flestir brugðust við með þögninni og einhver vildi sussa á hana. Ragna var þá skjót til svars og spurði hvort hún mætti frekar tala um kvef eða fótbrot. Hennar skilningur var sá að geðsjúk­dómar væru hvorki merkilegri né ómerkilegri en aðrir sjúkdómar og opinská umræða væri til góðs. Þannig vann hún gegn sorginni og sótti sér hjálp þegar neyðin varð stór.

Ragna var bóndi fram í fingurgóma. Hún rak bú sitt með sóma og skilaði börnum sínum inn í fullorðins­árin. Þau fengu öll gott veganesti frá móður sinni. Ragna á Laugabóli naut virðingar fyrir dugnað sinn og þá snyrti­mennsku sem einkenndi búið hennar. Stíf­bónaðar dráttar­vélar á hlaðinu og öllu snyrti­lega við komið á Laugabóli. Við bæ hennar var svo skrúð­garður sem hún kenndi við Bjarka heitinn, son sinn.

Eftir snjó­flóðin í Súðavík var Ragna gagnrýnin á frammistöðu yfirvalda sem sváfu af sér þá ógn sem vofði yfir plássinu þegar snjó­þyngsli voru og hengjurnar í fjallinu biðu þess að brjótast af stað af heljar­afli. Ragna taldi að mörgum manns­lífum, þeirra á meðal Bellu og Petreu, hefði verið fórnað með kæruleysi. Á þeim tíma tók ég viðtal við Rögnu fyrir DV. Sú hugmynd kom upp á þeim tíma að ég myndi skrifa um hana bók. Hugmyndin varð að veruleika árið 2006 þegar örlaga­saga Rögnu, Ljósið í Djúpinu, kom út. Bókin fékk gríðar­lega góðar móttökur og fór í metsölu. Ragna sagði þar sögu sína af einlægni og dró fátt undan. Samstarfið við hana var í senn ljúft og gefandi. Ég ók reglulega norður í Djúp til að taka niður sögur frá mögnuðu lífs­hlaupi konu sem lifði svo sannarlega sorg og gleði á þeim 75 árum lífshlaup hennar spannaði.

Eftir að bókin kom út héldum við vinskap. Ég hringdi reglulega í Rögnu og kom við hjá henni ásamt fjöl­skyldunni þegar færi gafst. Það voru ævinlega fagnaðar­fundir og gleði­stundir.

Eftir því sem árin færðust yfir minnkaði þrek Rögnu á Laugabóli. Þannig er auðvitað lífsins saga. Hún fékk inni á hjúkrunar­heimilinu Eyri á Ísafirði fyrir nokkrum árum. Þar naut hún góðs atlætis en henni leiddist samt. Það átti illa við hana að sitja aðgerðar­laus. Ég heimsótti hana gjarnan. Hún var ævinlega tilbúin að fara heim í dalinn sinn og spurði gjarnan hvort ég væri á leiðinni inneftir eða vissi af ferð. Framan af sat hún stundum fullklædd í stólnum sínum með handtösku sér við hlið, tilbúin að fara heim. Hún þráði það öðru fremur að komast í dalinn sinn. En þótt andinn væri reiðu­búinn var líkaminn ekki lengur eins og áður var. Þrekið var farið. Hún var ekki lengur fær um að vera ein á Laugabóli.

Seinasta heim­sóknin mín til Rögnu var í sumar. Hún var að vanda ánægð með endur­fundina en ég fann að það var af henni dregið. Hún var ekki lengur í kápunni sinni með töskuna sér við hlið að spyrja eftir fari. En hún bar það með sér að hún var á förum. Lífs­viljinn sem hún hafði viðhaldið alla tíð var greini­lega þverrandi. Í seinasta viðtalinu sem ég tók við hana sagðist hún vilja verða hundrað ára. En hún náði því ekki. Það vantaði rúm tvö ár uppá og þetta var orðið gott.

Í þessum mánuði ætlaði ég að heimsækja hana. Þá var ég of seinn. Mér var sagt að dauða­stríð hennar væri hafið. Við hlið hennar þegar hún kvaddi var eina eftir­lifandi barn hennar, Garðar Smári. Hinum megin hefur hún vonandi hitt fyrir börnin og barna­börnin sem hurfu alltof snemma úr þessari jarðvist.

Því fylgir ákveðinn tómleiki að ná ekki lengur að hitta sóma­konuna Rögnu og spjalla við hana um réttlæti jafnt og ranglæti. Lauga­dalurinn er ekki samur eftir brott­hvarf hennar. Skarð hennar verður vandfyllt. En minning hennar lifir. Ragna var ein af hetjum Íslands sem gaf ótal mörgum miklu meira en hægt var að ætlast til og hjálpaði þeim föllnu að rísa á fætur, án þess að krefjast neins í staðinn. Ég þakka dýrmæta samfylgd og orna mér við minningar frá vinskap sem alla tíð stóð óhaggaður.

Útför Rögnu fer fram frá Ísafjarðar­kirkju kl. 11 í dag, föstudag. Streymt er frá athöfninni á Facebook-síðu Viðburða­stofu Vestfjarða.

Þessa grein má einnig finna minningar.is á slóðinni https://minningar.is/account/obituaries/7KgUuBQ8OEod2ZztTnoI/form

Reynir Traustason.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning