Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Dæmdur kynferðisbrotamaður myrti fimm unglinga í Oklahoma: „Okkur grunaði aldrei neitt misjafnt“

Sjö manneskjur eru látnar, þar á meðal fimm unglingar, eftir skotárás í dreifbýli fyrir utan smábæinn Henryetta í Oklahoma, Banda­ríkjunum. Skot­maðurinn er talinn hafa framið sjálfsvíg eftir ódæðið.

Perez Hilton, af öllum mönnum, segir frá málinu á síðu sinni. Þar kemur fram að á mánudaginn hafi lögreglu­menn frá Okmulgee-sýslu verið að leita að tveimur unglingum sem tilkynnt hafði verið að væru týndar. Það voru þær Ivy Webster, 14 ára og Brittany Brewer, 16 ára en foreldrar þeirra tilkynntu hvarf þeirra eftir að stelpurnar gistu heima hjá vini þeirra yfir helgina. Þegar þær skiluðu sér ekki heim á sunnudags­kvöld var haft samband við lögregluna.

Lögreglan fór á staðinn þar sem stúlkurnar voru taldar hafa verið, á mánudags­morgun en við þeim blasti hræðileg sýn. Utandyra, úr alfara­leið, fann lögreglan lík sjö manneskja, þar á meðal þeirra Webster og Brewar og þriggja annarra unglinga. Voru það Elizabeth Allen, 17 ára, Michael James Mayo, 15 ára og Tiffany Dore Guess, 13 ára. Þá fannst móðir Tiffany, Holly Guess, sem og eigin­maður hennar og stjúpfaðir Tiffany, Jesse McFadden. Samkvæmt lögreglunni er talið að McFadden, sem var dæmdur nauðgari, talinn hafa skotið eiginkonu sína og unglingana fimm og síðan framið sjálfsvíg.

Samkvæmt The Oklahoman voru unglingarnir allir nánir vinir sem höfðu notið þess að halda gistikvöld í nokkur ár. Móðir Ivy, Ashleigh Webster sagði fjölmiðum að dóttir hennar hafi verið besta vinkona Tiffany. Sagðist hún þó ekki hafa vitað mikið um stjúppabba hennar, McFadden en hann var nýr eigin­maður móður hennar, Holly. „Við könnuðust bara við hann í gegnum vináttu barnanna okkar, við töluðum saman um að sækja börnin, skutla og fleira slíkt. En við vorum ekki vinir þess utan en við höfðum hitt hann og Holly margoft.“

Það sem fjöl­skyldur fórnar­lambanna vissu ekki var sú staðreynd að McFadden var dæmdur í fangelsi fyrir nauðgun árið 2003 en honum hafði verið sleppt árið 2020. Þá átti hann að mæta fyrir dómara á mánudaginn út af kæru vegna barna­kláms sem hann hafði í fórum sínum. Hann mætti hins vegar ekki í réttinn og var því lögreglan komin með handtöku­skipun á hendur honum.

Faðir Ivy, Justin Webster sagði: „Tiffany Guess og dóttir okkar voru bestu vinir en við vissum í raun ekkert um þennan náunga. Okkur fannst hann svolítið skrítinn en okkur leið vel með vináttuna, sérstak­lega vitandi að nokkrir vinir dóttur okkar voru oft með þeim þar að hanga. Þau fóru stundum þangað um helgar.“ Bætti hann við: „Tiffany kom stundum og gisti hjá okkur yfir helgar en okkur grunaði aldrei neitt misjafnt.“

Fjöl­skyldur fórnar­lambanna eru afar ósátt að vita nú, að McFadden hafi búið í samfélagi þeirra án þess að nokkrum hafi verið tilkynnt um hans glæpasögu.

Justin ræddi við KFOR-TV sjónvarps­stöðina um McFadden og það hvernig fjöl­skylda hans hafi fyrst frétt af fortíð hans eftir að harm­leikurinn hafði átt sér stað. „Ég er reiður kerfinu og ég held að allir í þessu landi ættu að vera reiðir út í kerfið. Þetta er maður sem hafði áður setið inni. Hann var kynferðis­glæpamaður og honum var sleppt fyrr en dómurinn hafði kveðið á um. Og ef þú spyrð mig, þá finnst mér að ef þú gerir mistök einu sinni, ættirðu að sitja inni alla ævi.“

McFadden játaði á sig nauðgun árið 2003 og var dæmdur í 28 ára fangelsi en var sleppt árið 2020, 17 árum síðar. Á meðan hann sat enn inni var hann sakaður um að senda nektar­myndir til manneskju undir lögaldri í gegnum síma sem hann hafði komist ólöglega yfir. Var hann að lokum kærður fyrir tvo ákæruliði sem snéru að því að biðja um kynferðis­lega hegðun með ólögráða einstaklingi með því að nota tækni, og einn ákærulið sem snéri um vörslu barna­kláms. Á mánudaginn átti hann að mæta fyrir dómara vegna málsins en eins og áður hefur komið fram, mætti hann ekki.

Móðir Holly og amma Tiffany, Jan Mayo, sagði í viðtali við Tulsa World að McFadden hafi verið svika­hrappur sem hefði logið að Holly um fortíð sína. Sagði hún að maðurinn hefði borgað konu til að hringja í Holly og þykjast vera konan sem McFadden var dæmdur fyrir að nauðga árið 2003. Hún hafi sagt Holly hinu „raun­verulegu sögu“ um nauðgunina sem Holly hafi trúað. Segist Jan hafa komist að þessu eftir að „fórnar­lambið“ hafi hringt í fjöl­skylduna eftir að fréttir af harm­leiknum fór í fréttirnar og sagt þeim að henni hafi verið borgað til að ljúga að Holly. „Dóttir mín myndi aldrei gera neitt til að skaða börn sín. Hún hafði ekkert með þetta að gera.“

Hér fyrir neðan má sjá umfjöllun News Nation um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Mette Frederiksen segir gagnrýni á orðaval sitt ekki lýsa afstöðu sinni. Ummæli hennar í stjórnmálahlaðvarpi hafa vakið umræðu í Danmörku.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár