„Staðan í húsnæðismálum er þung en alls ekki ómöguleg. Fólk á flótta dvelur í skammtímahúsnæði í allt að átta vikur og það er það húsnæði sem við erum að vinna í að fjölga. Töluverður fjöldi fólks ætti að öllu óbreyttu að vera á útleið úr þessum skammtímarýmum og annað hvort út á leigumarkað á eigin vegum eða til sveitarfélaganna en samningar standa yfir við sveitarfélögin.
Bæði þarf að fjölga þeim sveitarfélögum sem eru í samræmdri móttöku og eins að endursemja við þau sem fyrir eru en þessir samningar liggja allir á borðinu og unnið er að kappi að klára undirritun,“ segir Gylfi Þór Þorsteinsson, aðgerðastjóri teymis um móttöku flóttafólks frá Úkraínu, en í frétt RÚV í morgun kom fram að ríkið skoði að taka á leigu 10 hús sem gætu hýst allt að 600 flóttamenn.
„Ríflega helmingur þeirra sem koma hingað til lands í leit að vernd …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir