Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Olav er einn af Breiðavíkurdrengjunum – Selur eigurnar til bjargar hundinum: „Hann er barnið mitt“

Zorro er glæsilegur hundur.
Zorro er glæsi­legur hundur. Mynd: Aðsend

Olav Ingvald Olsen er 75 prósent öryrki en hann einn af Breiða­víkur­drengjunum svokölluðu sem máttu þola ofbeldi og hryllilegt harðræði í æsku. Hundur hans, Zorro er veikur og þarf að komast í aðgerð en Olav hefur ekki efni á því.

Olav Ingvald Olsen

Hann skrifaði eftir­farandi færslu á Facebook:

„Ég er að reyna að safna fyrir hann Zorro minn.  Hann er 13 ára gamall Borador sem ég elska meira en lífið sjálft. Það þarf að fjarlægja nokkur stækkandi fituæxli og líklega einn jaxl.

Ég sé að þetta er farið að valda honum miklum óþægindum og hjarta mitt er að bresta við það að sjá hann þjást…Ég er orðinn 75% öryrki og næ engan vegin að safna fyrir þessari aðgerð. Þegar ég er búinn að borga leigu, hita, rafmagn, síma og sjónvarp, þá get ég keypt mat handa honum og kettina mína og stundum fyrir mig út mánuðinn…Ég er ekki að biðja um ölmusu, er enn of stoltur til þess en ég á fullt af dóti sem ég nota ekki og ætla að reyna að selja, og vil ég biðja ykkur sem eru Facebook vinir mínir að dreifa þessum pósti sem víðast…Með pósti læt ég fylgja með myndir af því sem ég er að selja….Fólki er einnig velkomið að koma til að hitta Zorro og kíkja í Ólajóla­búðina mína, breytti svefn­herberginu í litla búð….

(Meistara­vellir 23. Sími 8439797 )

Ég er stoltur karlmaður á besta aldri, og það er erfitt að opna sig og segja frá vanda­málum sínum, en verð að brjóta odd af oflæti mínu til að bjarga barninu mínu sem ég elska meira en hægt er að lýsa með orðum, myndi fórna lífi mínu fyrir hann…“

Hér er Zorro bara hvolpur

Mannlíf heyrði í Olav hljóðið og spurði hann nánar út í málið.

„Já, það þarf að fjarlægja þrjú til fjögur fituæxli og hann þarf í tann­hreinsun og jafnvel tann­úrtöku. Og svo er það svæfingin og blóð­rannsókn.“

„Og er þetta ekki rándýrt?“

„Jú, þetta gæti kostað 200 til 300 þúsund krónur,“ svaraði Olav dapur í bragði.

Þegar blaða­maður Mannlífs spurði Olav hvernig gangi að safna beygði Olaf af, var klökkur er hann sagði: „Eftir að ég talaði við systur mína þá er ég kominn með um 70.000 krónur.“

Zorro verður 13 ára um jólin en Olav hefur átt hann ansi lengi. „Hann er bara barnið mitt.“

Zorro er glæsi­legur hundur.

Eins og fram kom áður þá var Olav Ingvald á Breiðuvík sem drengur en það segir hann vera löngu liðna tíð en „kannski þess vegna sem ég hugsa svona vel um dýrin mín. Þau kunna að elska mann skilyrðis­laust.“

Þau sem vilja hjálpa Olav að safna fyrir aðgerð Zorro er bent á að annað hvort leggja pening inn á Olav en hér eru banka­upplýsingarnar:  0515-26-142102 231064-2819
eða hringja í hann, hafi fólk áhuga á að kaupa af honum eitthvað af munum og gripum sem hann á.

Símanúmer hans er 843-9797.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning