Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Skrapp í land í Aberdeen en snéri aldrei aftur – Hvað varð um Hjört Björnsson?

Aberdeen-höfn um 1950
Aberdeen-höfn um 1950 Mynd: Lubbi

Hjörtur Björnsson var vanur sjómaður og þekktur sem slíkur á Seyðis­firði, heimabæ sínum. Hafði hann verið formaður á nokkrum bátum en árið 1951 var hann skipverji á vélskipinu Víking. Í febrúar það ár lá skipið við höfn í Aberdeen í Skotlandi. Þegar félagar hans ætluðu aftur um borð eftir að hafa skroppið í land, sagðist Hjörtur koma innan skamms á eftir þeim. Það gerði hann hins vegar ekki því hann hvarf sporlaust. Til hans sást aldrei framar.

Morgun­blaðið sagði svo frá hvarfinu á sínum tíma:

Sjómaður frá Seyðis­firði hverfur í Aberdeen-höfn

Skips­félögum þykir hvarf hans óskiljanlegt

KUNNUR sjómaður hjer úr bænum, sem verið hefur skipverji á vjelskipinu Víking, hvarf af skipinu er það lá í höfn í Aberdeen þann 26. febrúar. Síðan hefur ekkert til hans spurst. Þykir mönnum hjer hvarf hans óskiljanlegt.

Hjörtur Björnsson hefur lengi stundað sjósókn hjeðan frá Seyðis­firði og oft verið formaður á bátum. Hefur farið af honum orð sem sjósó­knara.

SAGÐIST KOMA INNAN STUNÐAR
Að kvöldi þess 26. febrúar lá Víkingur í „dokk“ í Aberdeen ferðbúinn. Þá um kvöldið, kl. níu skildi með þeim Hirti og skip­stjóra Víkings, er hjelt til skips. Sagðist Hjörtur koma innan stundar. Þar sem þeir voru, er um tveggja til þriggja mín. gangur, niður í „dokk“ þá, er Víkingur lá.

LÖGREGLAN HEFUR LEIT
Um kvöldið kl. 10 var Hjörtur ókominn. Skip­stjóri tilkynnti þá lögreglunni hvarf hans. Um kvöldið hóf Aberdeenlögreglan mjög skipulega leit að Hirti um alla borgina og í höfninni. Leitað var t.d. í skipum, sem þar voru, og eins var slætt. Þessi leit lögreglunnar bar ekki árangur. Í gærdag barst svo hingað skeyti frá Aberdeen-lögreglunni, þess efnis, að Hjörtur hefði ekki enn fundist.

ÓSKILJANLEG
Skipsfjelagar Hjartar telja hvarf hans óskiljanlegt. Útilokað telja þeir, að hann hafi fyrir­farið sjer. Kvöldið sem Hjörtur hvarf, var brottför Víkings frestað og fór báturinn ekki úr höfn fyrr en tveim dögum síðar. Þess skal getið að er Hjörtur hvarf mun hann hafa haft meðferðis um fimm pund. Leitinni mun verða haldið áfram. Hjörtur Björnsson var ókvæntur, fimmtugur að aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning