Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Köttur Illuga fór að væla að tilefnislausu – Greining dýralæknisins kom á óvart

Illugi Jökulsson fjölmiðla­maður greinir frá því á Facebook að kötturinn hans, Fiskur, hafi byrjað að væla, að svo virtist að engu tilefni. Fiskur er háaldraður í kattaárum, orðinn 17 ára, en dýra­læknir greindi hann með Alzheimer. Illugi segir þetta sorglegt þar sem Fiskur sé enn full­frískur.

„Passið vel upp á kettina. Hann Fiskur okkar er orðinn 17 ára en afar vel á sig kominn líkamlega og tekur enn á sprett úti í garði ef svo ber undir og er hinn liðugasti við hopp og skopp. Hins vegar höfum við hér í Skóla­strætinu furðað okkur á því að hann hefur síðasta misserið tekið upp á því að mjálma og raunar væla æ meira og alveg að tilefnis­lausu hefur okkur virst. Allt í einu rekur hann upp roku af ansi eymdar­legu væli, þótt ekkert sýnilegt virðist að honum,“ segir Illugi.

„Þetta væl hefur aukist síðustu mánuði og nú vælir hann á þennan hátt mörgum sinnum á sólar­hring, jafnt á nóttu sem degi. Um daginn heyrði ég í útvarpinu lýsingu á gömlum hundi sem fór að emja svona upp úr þurru, og það var rakið til heila­bilunar af svipuðu tagi og Alzheimer í okkur mönnunum.“

Það var svo í morgun sem dýra­læknirinn greindi hann með Alzheimer. „— Og nú í morgun hringdi ég í Dagfinn dýralækni og lýsti væli Fisks og öllu hans hátterni og dýra­læknirinn sagði strax að já, þetta stafaði augljós­lega af því sem við myndum kalla Alzheimer. Þetta er þeim mun hörmulegra sem Fiskur er svo hraustur líkamlega að hann gæti lifað í mörg ár enn, en við þessum sjúkdómi er víst ekkert að gera, nema hugsanlega gefa honum eitthvað róandi svo það kvelji aumingja köttinn ekki eins mikið og ella þegar hann hættir smátt og smátt að skilja veröldina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning