Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Katrín fagnar merkum áfanga í dag: „Þetta 15 ára ferðalag hefur verið viðburðaríkt“

Katrín Jakobsdóttir
Katrín Jak­obs­dóttir Mynd: RÚV

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra og eigin­maður hennar, Gunnar Sigvaldason, fagna í dag 15 ára brúðkaups­afmæli sínu og þar með svokölluðu „kristalls­brúðkaupi“. Ráðherrann segist vera þakklát alla daga og margar hjónabands­stundirnar geri „lífið svo mergjað“Katrín segir sjálf frá hinum merka á Facebook-síðu sinni og kemur þar meðal annars inn á hvað það er sem tekur stundum á í sambandi þeirra hjóna.

„Við giftum okkur nokkuð skyndi­lega árið 2007 og sögðum örfáum frá þeirri àkvörðun, ég var þá komin á steypirinn og sonur 2 kom í heiminn á gamlársdag sama ár. Við giftum okkur hjá Sýslu­manni og fórum svo með elsta syninum á Hornið og Ísbúð Vestur­bæjar. Við komumst að því þetta kvöld að líklega væri barnið með mjólkuofnæmi þar sem brúðkaups­nóttin fór i að hjálpa gubbandi tveggja ára barni sem hafði fengið sér ótæpilega af ís.

En fall er farar­heill og þetta 15 ára ferðalag hefur verið viðburða­ríkt, stundum erfitt, oft skemmtilegt en fyrst og fremst farsælt.

Þessa mynd birti Katrín með færslu sinni á Facebook.

Verstu stundirnar eigum við þegar við setjum saman húsgögn eða erum saman í bíl því við eigum það sameiginlegt að vita allt best. Bestu stundirnar eru þegar við hlæjum saman að einhverri vitleysu sem við gerum sem betur fer oft – og alltaf eftir þessar erfiðu stundir!

Við sýndum til dæmis nokkra snilldar­takta núna á laugar­daginn þegar mér fannst það góð hugmynd að keyra í ófærð og stórhríð til að græja nokkrar jóla­gjafir. Eftir afar hægan akstur úr Vesturbæ í Kringluna þar sem ég tók mitt hlutverk sem aðstoðar­ökumaður mjög alvarlega við litlar vinsældir vorum við sammála um að þetta hefði mögulega ekki verið frábær hugmynd! Eftir að hafa komist klakk­laust heim enduðum við á kafi í snjó­mokstri (á meðan enn kyngdi niður snjó) þar sem við vissum að sjálfsögðu bæði best hvernig ætti nákvæmlega að moka snjó með sem skilvirkustum hætti og þessi mynd er tekin í miðju því samtali.

Það eru allar þessar stundir sem láta kannski ekki mikið yfir sér en sem ég er þakklát fyrir alla daga og gera lífið svo mergjað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt