Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Lögreglumenn æfir yfir gleðigöngunni: „Þvílík vanvirðing og „fordómar”“

Lögreglu­menn virðist ekki alls kosta sáttir með gleði­gönguna sem gengin var í dag. Ástæðan er að nokkrir héldu á skiltum þar sem lögreglan var sögð óvelkomin í gönguna. Óánægjuna má sjá hér og þar á Facebook, einna skýrast þó í hópnum Lögreglu­minjasafnið. Hér má lesa nánar um ástæðu skiltana en til að gera langa sögu stutta þá snýst málið um handtök í gleði­göngunni árið 2019 sem margir telja hafa verið grófa.

Guðmundur Fylkisson lögreglu­maður deilir í hópnum Lögreglu­minjasafnið mynd af einu skilti sem sást í göngunni í dag og má sjá hér fyrir ofan. Nær allar athuga­semdir eru neikvæðar í garð göngunar. „Kjána­legur boðskapur frá þeim sem sífellt kvarta undan því að vera í minnihlutahóp,“ skrifar einn maður. Annar segir: „Þetta sýnir bara eitt fordóma það er nefnilega þannig að fordómar eru allsstaðar.“ Sá þriðji segir: „Skipuleggjendum til skammar“. Sá fjórði „Talandi um fordóma…..“

Sá fimmti segir: „Þvílík vanvirðing og “fordómar”. Ákaflega ósmekklegt í alla staði. Dagurinn í dag einkennist af væntumþykju og virðingu í garð allra. Hvað er þetta?“ Sá sjötti segir: „Hrikalega lélegt“ og sá áttundi: „Þetta kallast að skjóta af sér lappirnar.“

Ljóst er að flestir sem stinga niður penna eru lögreglu­menn. Rétt er þó að taka fram að einn lögreglu­maður, Fjölnir Sæmundsson, lögreglu­fulltrúi og vara­þingmaður Vinstri grænna, biður menn að halda ró sinni. Hann skrifar: „Þetta eru bara ungir krakkar við verðum að sýna okkar þekkta umburðar­lyndi.“

Svo eru sumir sem móðgast fyrir hönd lögreglunnar, líkt og Gústaf Níelsson, bróðir Brynjars Níels­sonar og fyrr­verandi oddviti Íslensku þjóð­fylkingarinnar. Hann skrifar og deilir sömu mynd og Guðmundur Fylkisson:

„Þessa mynd birti Ragnar Árnason, fv. lögreglu­maður á fébókar­vegg sínum í tilefni af skokallaðri gleði­göngu dagsins, og þykja honum þetta kaldar kveðjur til lögreglunnar, sem vonlegt er. Lögreglan hefur að sönnu lagt sig í líma svo að gangan megi fara vel og frið­samlega fram og er það vel.

Óvild göngu­fólks í garð löggunnar eru óviðeigandi og smekklaus.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið