Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Vilhjálmur lætur að því liggja að hryðjuverkamálið tengist frumvarpi Jóns: „Okkar eigið USA“

Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson gætti hagsmuna þeirra Eljumanna Mynd / Facebook.
Vil­hjálmur Hans Vil­hjálms­son gætti hags­muna þeirra Elju­manna Mynd / Facebook.

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttar­lögmaður ritar afar áhuga­verða grein sem ber yfir­skriftina:

Jón Spæjó:

„Það er haust. Það styttist í að fjárlög ríkisins komi til umræðu á Alþingi. Þegar þeir stíga á stokk íbyggnu mennirnir með alvarlega lúkkið í svörtu búningunum og lýsa því yfir að þeim hafi naumlega tekist að koma í veg fyrir hryðju­verk. Landsmenn og konur fá hland fyrir hjartað og margfalt fleiri trúa því í dag en í gær að mannskætt hryðju­verk verði framið á Íslandi.“

Bætir við að „dómsmála­ráðherra er sleginn í yfir fréttum lögreglunnar. Hann hrósar lögreglunni í hástert fyrir að hafa afstýrt voða­atburði. Hann segir að skelfilegar aðstæður séu að myndast á Íslandi og almenningur þurfi að horfast í augu við veru­leikann.

Á Laga­deginum segir saksóknari að huga þurfi að því að koma upp málmleitar­hliðum í dómhúsum. Okkar eigið USA.“

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hér á mál­verki eftir Þránd Þór­ar­ins­son mynd­list­ar­mann.

Vilhjálmur nefnir að „eftirlits­iðnaðurinn á Íslandi faðmast tárvotur yfir því að vera enn á lífi og allir klappa öllum á bakið. Dómsmála­ráðherra sprettur fram eins og stál­fjöður í fjöl­miðlum vopnaður nýju laga­frumvarpi um forvirkar rannsóknar­heimildir. Hann segir að frum­varpið sé tilbúið í dómsmála­ráðuneytinu. Það eigi bara enn eftir að líta dagsins ljós. Hvernig sem það kemur heim og saman.“

Og Vilhjálmur heldur áfram:

„Hugsanlega þolir frum­varpið bara ekki dags­ljósið. Dómsmála­ráðherra segir að laga­frumvarpið sé nákvæmlega það sem kallað hafi verið eftir. Tíma­setningin sé tilviljun. Einmitt. Við erum öll fífl. Laga­frumvarp samið af lögreglu fyrir lögreglu til þess að njósna um borgarana eftir geðþótta lögreglu án þess að grunur sé um afbrot og íþyngjandi eftirlits dómstóla. Nafnið er reyndar snilld. Frumvarp um heimildir til afbrota­varna. Hver kaupir það ekki? Afbrota­vörn. Nafnið breytir samt engu. Þetta er bara nýtt orð yfir sama skítinn. Réttinn til að njósna. 1984 eftir Orwell.“

Bætir við að „þessi krafa að löggjafinn veiti lögreglunni heimild til þess að njósna um borg­aranna án aðkomu dómstóla og gruns um að afbrot hafi verið framið er ekki ný af nálinni. Hún hefur margoft komið fram áður og yfirleitt sem svar við kalli lögreglunnar „Úlfur, Úlfur”.

Í dag eru það hryðju­verk. Á morgun stór­hættulegir blaðamenn sem ógna þjóðar­öryggi með frétta­flutningi um landið og miðin og fyrir 10 árum voru það Hells Angels.“

Hann segir einnig að „sú ætlan lögreglu leiddi til að forsprakki samtak­anna var látinn rotna í gæslu­varðhaldi við ómannúðlegar aðstæður í hegningar­húsinu við Skólavörðu­stíg í tæpa sex mánuði. Hann var síðan ákærður fyrir allt og ekkert. Stuttu síður var hann sýknaður af öllum kröfum ákæru­valdsins í Hæstarétti. Mörgum árum síðar voru honum dæmdar 7,5 milljónir í skaða­bætur vegna aðfarar íslenska ríkisins að mann­réttindum hans. Mér er ekki kunnugt um að nokkur hafi beðið hann afsökunar á því að íslenska ríkið lagði líf hans í rúst. Tilgangurinn helgar meðalið.“

Að lokum bendir Vilhjálmur á að í dag hafi lögreglan „víðtækar vald­heimildir til þess að beita borg­aranna þvingunar­ráðstöfunum í þágu rann­sóknar á sakamálum s.s. síma­hlerun, herbergja­hlustun, skoðun á rafrænum gögnum, stað­setningu á grund­velli símaganga, beitingu eftirfarar­búnaðar o.s.frv. Í dag eru þessar aðgerðir lögreglu háðar samþykki og sæta eftirliti dómstóla eins og eðlilegt er í réttar­ríki. Því má alls ekki breyta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning