Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Frosti Logason kominn á sjóinn og er eldhress: „Ég var alveg blautur á bak við eyrun“

Frosti Logason að blóðga um borð í Vésteini GK
Frosti Logason að blóðga um borð í Vésteini GK

„Þetta er rosalegt ævintýri. Mig hefur alltaf dreymt um að prófa þetta en aldrei tími til fyrr en núna,“ segir Frosti Logason fjölmiðla­maður sem stundar sjómennsku á línu­bátnum Vésteini GK fyrir austan land.

Frosti er þekktur sem fjölmiðla­maður og gjarnan kenndur við þáttinn Harmageddon sem hann stjórnaði um langt árabil. Hann er nú hættur hjá fjölmiðlarisanum Sýn og rær á önnur mið, í orðsins fyllstu merkingu.

Frosti með vænan þorsk.

Frosti er búinn að fara tvo túra og áhöfnin hefur mokveitt út af Aust­fjörðum, í Litladýpi eða Utanfótar, eins og það kallast. Margir sem eru í sporum Frosta glíma við sjóveiki og eru sumir nánast óvinnufærir vegna þeirrar dular­fullu veiki.

„Við veiddum tvo risa­há­karla“

„Ég slapp alveg við sjóveikina, er einn af þessum heppnu. Hef samt aldrei siglt með öðrum skipum en Herjólfi og einhverjum smáferjum. Ég heyri að menn geti orðið alveg óvígir í koju. Mér gengur sem betur fer vel að stíga ölduna, alheil­brigður“.

Vésteinn GK er línubátur. 30 rúmlesta plast­bátur með beitningavél. Það eru fjórir um borð. Frosti er er eini hásetinn. Hann er hæstánægður með félaga sína sem eru duglegir að segja honum til.

„Þvílíkir jaxlar sem stunda þetta. Þeir hafa verið duglegir að leiðbeina viðvan­ingnum. Ég var alveg blautur á bak við eyrun en þetta er allt að lærast,“ segir Frosti.

Hann ítrekar hve heppinn hann sé að fá eldskírn hjá annari eins áhöfn. Og það er mikið um að vera. 80 þúsund krókar hafa verið beittir síðan á sunnudag. Línan er hvorki meira né minna en 25 kíló­metrar á lengd. Áhöfnin stendur i allt að 20 tíma við veiðarnar. Stundum veiðist annað en þorskur og grálúða.

Frosti á goggnum.

„Við veiddum tvo risa­hákarla á línuna. Við slepptum þeim og vonum að þeir hafi lifað af. Það er vonlaust að ná þessum skepnum um borð. Ég er að upplifa mikið ævintýri. Þetta starf á mjög vel við mig,“ segir Frosti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið