Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Kampavíns-Kalli – Reyndi að kúga fé út úr meðlimi bresku konungsfjölskyldunnar

Kampavíns-Kalli
Kampa­víns-Kalli

Paul Adalsteinsson lifði ekki tilbreytingar­snauðu lífi – Reyndi að kúga fé út úr meðlimi bresku konungs­fjöl­skyldunnar – Var sagður vera Kampavíns-Kalli – Gekk undir fjölmörgum nöfnum.

Maður er nefndur Paul Adalsteinsson. Paul var af íslenskum ættum, en afi hans hét Páll Aðal­steinsson. Páll fluttist búferlum frá Íslandi til Grimsby á Englandi á fyrri hluta 20. aldar og var þar meðal annars skip­stjóri. Paul fæddist árið 1976 í Aberdeen í Skotlandi. Foreldrar hans skildu árið 1985, þegar Paul var níu ára, en hann ákvað þá að taka upp ættarnafn breskrar móður sinnar, Elizabeth Strachan, og gekk þaðan í frá undir nafninu Ian Strachan. En allt um það.

Barst mikið á

Af ævi Ians segir fátt fyrr en hann komst í fréttir árið 2005. Um þær mundir gekk hann undir nafninu Charles Goldstein og gaf sig út fyrir að vera umsvifa­mikill fasteigna­sali og skreytti sig að auki með lögmanns­titli. Þetta gerði honum kleift að dandalast eitthvað með elítunni þar og þá.

Allt í fari hans bar þess merki að honum vegnaði vel; fötin voru klæðskera­saumuð og hann virtist lifa lífi þar sem kampavín og kavíar komu mikið við sögu. Vinum sínum sagði hann að hann hefði erft fúlgur fjár eftir ömmu sína og ekki voru bestu vinir hans neitt slor. Þeirra á meðal voru, að hans sögn, prinsarnir og bræðurnir William og Harry.

Bjó heima hjá mömmu

Ian var háður lyfseðils­skyldum lyfjum og var sagður bryðja þau eins og sælgæti. Til að verða sér úti um þau notaði hann ýmis nöfn; Ian Strachan, Paul Adalsteinsson, Charlie Goldstein og Paul Stein.

Sögur af velgengni Ians voru verulega ýktar, svo ekki sé tekið dýpra í árinni, og reyndin allt önnur. Ian hafði fátt til að guma sig af; hann hafði gefist upp á háskóla­námi og bjó heima hjá mömmu sinni. Í Daily Record sagði að fjöl­skylda Ians, sem hann hafði þá fjarlægst, hefði gert gys að full­yrðingum um elítu­lífsstíl Ians; hann væri svo sannarlega enginn „Kampavíns-Kalli (e. champagne Charlie)“, eins og lögfræðingur hans síðar meir kallaði hann. Frændi Ians, hótel­eigandi í Aberdeen, sagði: „Mér er til efs að hann eigi skyrtuna sem hann klæðist.“

Þannig var nú það.

Svæsið myndband

Árið 2005 fékk Ian frábæra hugmynd til að hagnast verulega, eða svo hélt hann. Ian og maður að nafni Sean McGuigan hugðust verða sér úti um 50.000 sterlingspund með fjárkúgun. Þeir réðust ekki á garðinn þar sem hann var lægstur, því fórnar­lambið tilheyrði bresku konungs­fjöl­skyldunni.

Félagarnir sögðust hafa í fórum sínum myndskeið sem sýndi helsta aðstoðar­mann, „right hand man“, þess konungborna sniffa kókaín af miklum móð og nota við athöfnina kredit­kort frá Harrods. Harrods-kort ku víst vera afar fáséð og ekki á hvers manns færi að komast yfir slíkt.

Það var þó ekki allt, því einnig átti mynd­bandið að sýna aðstoðar­manninn og þann konungborna stunda kynlíf saman á meðan nektar­dansmey frá Stringfellow-klúbbnum horfði á, sú hét Cindy.

Einhver annar konungborinn er einnig nefndur til sögunnar, en sá dinglaði kynfærum sínum að Ian; „waved his willy“, eins og segir á vefsíðu Daily Mail.

Hægt er að lesa alla frásögnina um Kampavíns-Kalla í nýjasta blaði Mannlífs, nákvæmlega hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið