Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Halldór sagðist loks hafa fundið morðingja dóttur sinnar – Sást aldrei framar

Vancouver í kringum 1960
Vancouver í kringum 1960

Halldór Halldórsson heimsótti nágranna sinn kvöld eitt í apríl og lá greini­lega þungt á honum. Greiddi hann nágrannanum peninga­skuld sína við hann og sagðist nú loks hafa fundið morðingja dóttur sinnar. Hvarf hann svo í myrkrið. Systir Halldórs, Anna, bjó með bróður sínum en þegar hún kom heim eftir útstáelsi voru nýkeyptar matvörur í eldhúsinu sem og málning og tveir málninga­burstar. En enginn Halldór. Hann fannst aldrei aftur.

Þetta gerðist þann 1. apríl 1959 í Vancouver, Kanada. Ekki er mikið vitað um Halldór eða systur hans Önnu en þau voru íslensk og bjuggu í Vancouver. Í Lögbergi-Heims­kringlu var skrifað um hið dular­fulla hvarf Halldórs árið 1960 eftir að úrklippa var send á blaðið, frá frétt morgun­blaðs í Vancouver. Hér fyrir neðan má lesa umfjöllunina:

Íslend­ingur hverfur

Blaðinu barst úrklippa úr morgun­blaðinu Province í Vancouver, dagsett 21. marz, þar sem sagt er frá undarlegu hvarfi manns að nafni Halldór Halldórsson, 62 ára að aldri, sem af nafninu að dæma virðist vera íslenzkrar ættar. Hann átti heima í fátækra­hverfi við sjávar­síðuna, sem nefnist “The Waterfront“, og er hluti af Burnaby. I hverfinu eru 139 híbýli af furðulegustu gerð, og búa þar um 200 manns í leyfis­leysi (squatters), fólk, sem ekki á í önnur hús að venda. Þangað liggur mjór stígur ofan úr borginni. Þar er hvorki rafmagn, vatns­leiðslur né sími.

Kvöldið 1. apríl 1959 kom Halldór Halldórsson til nágranna síns, Dan Morgans, og var honum auðsjáanlega þungt fyrir brjósti; hann greiddi Mr. Morgan $10, sem hann skuldaði honum og sagði síðan: „Dan, nú hefi ég loksins eftir allan þennan tíma komizt að því, hver myrti dóttur mína. Ég ætla upp í borgina að gera eitthvað í því máli.“ Síðan hvarf hann út í myrkrið og hefir ekki sézt síðan. Frétta­ritarinn furðar sig mikið á því, að ekki skuli hafa orðið heyrum kunnugt um hvarf þessa manns, að lögreglan hafi engar skýrslur um hann né dóttur hans. Hann leitaði því frétta hjá nágrönnum Halldórs, og voru þeir áhyggju­fullir vegna hvarfs hans, því þeir þekktu hann sem hæglátan en mann­blendin mann, og þeir furða sig á því, að ekki skuli hafa verið grennslazt neitt um hvarf hans, en flestir eru þeir þeirrar skoðunar, að yfir­völdin láti sig lítið skipta afdrif fólksins í þessu hverfi.

Þeir muna eftir stúlkunni, sem bjó ein í kofa, sem nefndist „The Ivy Nook“. Hún hafði langt svart hár, er lék laust um herðar hennar. Kofinn er nú í eyði. Frétta­ritarinn fór til heimilis Halldórs, en þar býr systir hans, Miss Anna Halldórsson, á sjötugs aldri. Hún þykist viss um, að bróðir sinn hafi ekki farið burt sjálf­krafa, að hann hafi verið burt­numinn eða myrtur. Hún segir, að 1. apríl hafi hann farið í pósthúsið í North Burnaby og sótt stjórnar­styrkinn sinn, ávísun fyrir $72. Síðan keypti hann matvæli fyrir $1.50 og tvo málningar­bursta og málningu. Þegar hann kom til baka, var systir hans ekki heima, en þegar hún kom heim, voru matvælin og málningar­vörurnar þar, en bróður sinn hefir hún ekki séð síðan. Hún segir, að hann hafi aldrei sótt spari­fötin sín né bátinn sinn, sem honum hafi þótt vænt um og verið hreykinn af.

Miss Halldórsson virtist lítið vita um dótturina, en hún staðhæfir, að hún hafi tilkynnt lögreglu Vancouverborgar og R.C.P.M. í Burnaby um hvarf bróður síns. Hvorugt lögreglu­liðið hefir skýrslur um þetta og málinu virðist lokið. En fólkinu í fátækra­hverfinu við sjávar­síðuna er tíðrætt um Halldór Halldórsson, hið undarlega hvarf hans og um hina svart­hærðu dóttur hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning