Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Anna minnist fyrstu daga faraldursins á Tenerife: „Þetta voru æsilegir dagar“

Anna Kristjáns.
Anna Krist­jáns.

Anna Kristjáns­dóttir minnist þess er hún festist næstum því á Íslandi vegna útgöngu­banns vegna Covid-faraldursins fyrir þremur árum.

Hin bráð­fyndna Anna Kristjáns­dóttir skrifar daglega dagbókar­færslu og birtir á Facebook við fádæma vinsældir lesenda en á þessu byrjaði hún er hún flutti til Tenerife fyrir þremur árum. Í nýjustu færslunni rifjar hún meðal annars upp marsmánuð fyrir þremur árum er Covid-faraldurinn var farinn að láta á sér kræla svo tekið væri eftir. Hafði hún átt pantað flug til Íslands en ákvað að fara ekki. Sem var sennilega fyrir bestu því líklegast hefði hún orðið föst á Íslandi en fluginu til baka var aflýst. Viðurkennir hún að þó hún hafi verið óhrædd hafi hún verið með smá kvíðahnút í maganum. Hér fyrir neðan má lesa færsluna í heild sinni:

„Dagur 1308 – Enn um sumarið.

Ég skrapp á Klausturbar í gær, enda pönnuköku­dagur. Abbadísin hún Herdís hund­skammaði mig fyrir að segja að sumarið væri komið. Það er rétt komið vor og varla meira en það sagði hún enda margir kaldir dagar framundan. Ég skammast mín alveg oní tær og iðrast orða minna. Það breytir ekki því að 26. mars næst­komandi verður klukkunni flýtt og þá verður sumartími og við getum byrjað að brosa í átt að sólinni og sumrinu.Sævar ábóti söng fyrir mig og þá lagði ég á flótta, enda sá ég fram að skít­tapaðan leik í handbolta og vildi vera eins fjarri og mögulegt var til að sleppa við táraflóð Íslendinganna er leikurinn tapaðist. Jæja, ýmislegt fór öðruvísi en ætlað var. Til hamingju Íslendingar.Í dag er sá þrettándi, reyndar mánudagur (eitthvað annað en föstu­dagurinn þrettándi sem var tvisvar í janúar) og í hugann koma minningar frá því fyrir þremur árum og smitum vegna Cóvið fór snar­fjölgandi á Spáni sem og hér og rætt um það í alvöru að loka landinu og setja á útgöngu­bann. Á þessum tíma átti ég pantað far til Íslands, hafði ætlað að skreppa þangað í fáeina daga, en sá fram á að ef ég færi, myndi ég þurfa að eyða öllum tímanum á Íslandi í sóttkví og ég hætti við ferðina, enda ljóst að ef ég hefði farið, hefði ég ekki komist til baka eftir að fluginu til baka var aflýst. Þetta voru æsilegir dagar og enginn vissi hvað framtíðin bæri í brjósti sér, kjöt­kveðju­hátíðinni í Los Cristianos aflýst og enginn vissi hve veiran væri alvarleg, hvort þetta þýddi jafnvel endalok mannkyns og fyrstu einstaklingarnir voru byrjaðir að deyja.Ég var samt óhrædd þó kannski með örlítinn kvíðahnút í maganum. Ég var jú búin að lifa lífinu, með fjöl­breytta lífs­reynslu að baki, en sá jafnframt fram á að ef að útgöngu­bann brysti á, gæti ég bætt slíku við afreka­skrána á efsta degi og ég ætlaði sko ekki að missa af því.Í dag er ég reynslunni ríkari.—–Ég set inn færslu dagsins dálítið snemma og tilkynni hér með að ég verð bíllaus næstu tvo dagana hið minnsta. Hún Mjallhvít mín er að fara í dekur­meðferð sem endar með árlegri+skoðun. Ég er viss um að Höski vinur minn og Maggi mágur verða ánægðir með þetta, enda gamlir skoðunar­menn hjá Frumherja. Reglunni skal haldið áfram þótt búið sé í öðru landi, að láta skoða bílinn á réttum tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt