Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Uppbygging lífsgæðakjarna í Reykjavík: „Stuðlar að meiri lífsgæðum fremur en hver í sínu horni“

Fyrsta skóflustungan af leiguíbúðum fyrir aldraða við Skólaveg.
Fyrsta skóflustungan af leigu­í­búðum fyrir aldr­aða við Skólaveg. Mynd: Róbert Reynisson

„Afar ánægjulegt er að geta með samhentu átaki Sjómanna­dags­ráðs, Reykja­víkurborgar og ríkisins, stuðlað að jafn­víðtækri uppbyggingu leigu­íbúða fyrir aldraða. Framkvæmdin endur­speglar hvernig slíkt samstarf stuðlar að meiri lífsgæðum og hraðari uppbyggingu, fremur en að hver vinni í sínu horni,“ segir Sigurður Garðarsson, framkvæmda­stjóri Sjómanna­dags­ráðs og Nausta­varar.

Við Skógarveg rísa stvö ný fjölbýlishús með 87 íbúðum sem eru hluti af lífsgæða­kjörnum Sjómanna­dags­ráðs, Nausta­varar og Hrafnistu. Leigu­íbúðirnar eru fyrir 60 ára og eldri sem tengjast þjónustu­miðstöðinni Sléttunni við Sléttuveg í Reykjavík.

Hugmynda­fræði lífsgæða­kjarnans er fædd hjá Sjómanna­dags­ráði og hefur þar verið í þróun í áratugi. Hún gengur út á að reka samhliða hjúkrunar­heimili, leigu­íbúðir og þjónustu­miðstöðvar þar sem eldra fólki eru búnar aðstæður til að hámarka lífsgæði sín.

Sérhannaðar með þarfir eldra fólks

Uppbygging lífsgæða­kjarnans er samstarfs­verkefni Sjómanna­dags­ráðs, Reykja­víkurborgar og ríkisins. Framkvæmdir annast Þarfaþing hf. sem skilar íbúðunum fullbúnum til Nausta­varar og er ætlað að því verði lokið seinni hluta ársins 2024. Aríel Pétursson, formaður Sjómanna­dags­ráðs og Dagur B. Eggertsson borgar­stjóri í Reykjavík voru viðstaddir þegar að Guðbjörn Guðjónsson gröfu­maður hjá undir­verktaka Þarfa­þings tók fyrstu skóflu­stunguna vegna framkvæmd­anna sl. föstudag að viðstöddum aðstand­endum framkvæmd­anna.

Sjómannadagsráð hefur þegar til útleigu í gegnum dóttur­fyrirtæki sitt, Naustavör, 60 íbúðir við Sléttuveg 27. Verða því alls 147 íbúðir fyrir þennan aldurshóp til útleigu í lífsgæða­kjarnanum að framkvæmdum loknum. Gæði og búnaður íbúðanna verður sambærilegur og í núverandi íbúðum við Sléttuveg. Innan­gengt er úr öllum húsunum í þjónustu­miðstöð á Sléttu­vegi. Auk þess annast dóttur­félagið Hrafnista rekstur hjúkrunar­heimilis með 99 íbúðum auk þjónustu­miðstöðvarinnar Sléttunnar sem er samstarfs­verkefni með öðrum félags­miðstöðvum eldri borgara í Reykjavík.

Nýjar íbúðir Nausta­varar verða í tveimur samtengdum húsum við Skógarveg 4 og 10. Íbúðirnar eru ýmist tveggja eða þriggja herbergja á bilinu 54 til 90 fermetrar, en þrjár íbúðir verða um 120 fermetrar að stærð. Í íbúðunum er allt aðgengi gott og þær sérhannaðar með þarfir eldra fólks í huga. Hurðaop og gangar eru breiðari en gengur og gerist, einnig eru baðherbergi og eldhús sérhönnuð svo auðvelt sé að nota ýmiss konar stuðnings­tæki. Reiknað er með að fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar til afhendingar um mitt árið 2024.

Undir báðum húsum verður ein stór bíla­geymsla þar sem stæði verða leigð út sérstak­lega. Einnig verða útistæði við húsin og þar verða föst stæði einnig leigð út til íbúa með sama fyrir­komulagi og í leigu­íbúðunum sem eru við Sléttuveg.

Meðfylgjandi eru tölvu­gerðar myndir af nýju húsunum, auk mynda frá athöfn sl. föstudag þegar tekin var skóflu­stunga við upphaf framkvæmd­anna.

Um Naustavör og Sjómannadagsráð:

Naustavör er óhagnaðar­drifið leigu­félag sem var stofnað árið 2001 í þeim tilgangi að byggja og bjóða upp á sérútbúið húsnæði, með aðgengi að þjónustu og afþreyingu sem hentar sérstak­lega vel fólki frá 60 ára aldri. Myndi félagið hagnað er honum varið í frekari uppbyggingu á aðstöðu og þjónustu en arður er ekki greiddur til eigenda. Naustavör er í eigu Sjómanna­dags­ráðs og er eitt af helstu hlut­verkum Sjómanna­dags­ráðs að vera leiðandi í öldrunar­þjónustu á landinu. Hjúkrunar­heimili Hrafnistu eru einnig í eigu Sjómanna­dags­ráðs og er gott samstarf á milli Nausta­varar og Hrafnistu, enda eru allar leigu­íbúðirnar í næsta nágrenni við Hrafnistu­heimilin. Gott aðgengi er innanhúss á milli íbúðanna og hjúkrunar­heimilanna.

Fyrsta skóflustungan af leigu­í­búðum fyrir aldr­aða við Skólaveg.

Sjá einnig: www.naustavor.is og www.slettan.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið