Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Tilkynningum um heimilisofbeldi og kynferðisofbeldi fækkað – Beiðnir um leit að börnum fjölgað

Menntasetur Lögreglu. Mynd/skjáskot.
Mennta­setur Lögreglu. Mynd/skjá­skot.

Mánaðar­skýrsla lögreglu­stjórans á höfuð­borgar­svæðinu fyrir júlí 2022 sýnir að hegningar­lagabrotum hefur fækkað lítillega.

Skráð voru 765 hegningar­lagabrot á höfuð­borgar­svæðinu í júlí og fækkaði þessum brotum lítillega á milli mánaða.

Sláandi er að sjá fjölgun í beiðnum um leit að börnum og ungmennum. Alls bárust 15 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í júlí, sem er fjölgun á milli mánaða.

Heilt yfir hafa þó borist um 34% færri beiðnir það sem af er ári miðað við síðustu þrjú ár á undan.

Þjófnaður og innbrot

Tilkynningum um þjófnað fækkaði lítillega á milli mánaða. Heilt yfir bárust þó álíka margar tilkynningar og hafa borist að meðaltali síðustu 12 mánuði á undan. Af þjófnaðar­brotum fækkaði innbrotum mest á milli mánaða. Alls bárust 82 tilkynningar um innbrot í júlí miðað við 105 tilkynningar í júní.

Það sem af er ári hafa þó borist álíka margar tilkynningar um innbrot líkt og bárust að meðaltali fyrir sama tímabil síðustu þriggja ára á undan.

Þónokkur fjölgun var á tilkynningum um nytja­stuld ökutækja í júlí. Alls bárust 32 tilkynningar sem eru um 44 prósent fleiri tilkynningar en að meðaltali síðustu sex mánuði á undan.

Það sem af er ári hafa þó borist færri tilkynningar um nytja­stuld en árin á undan.

Ofbeldis- fíkniefnabrotum fækkar

Alls barst 121 tilkynning um ofbeldis­brot í júlí og fækkaði þessum tilkynningum á milli mánaða. Tilkynningum um heimilis­ofbeldi fækkaði einnig á milli mánaða. Í júlí var tilkynnt um 19 kynferðis­brot, er það þónokkur fækkun tilkynninga miðað við síðustu mánuði á undan.

Það sem af er ári hafa verið skráð um 13 prósent færri kynferðis­brot á höfuð­borgar­svæðinu saman­borið við meðaltal á sama tímabili síðustu þrjú ár á undan.

Skráðum fíkniefna­brotum fækkaði á milli mánaða og var eitt stórfellt fíkniefna­brot skráð í júlí.  Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna fækkaði á milli mánaða en tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur fjölgaði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið