Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Hjalti Úrsus rannsakaði mál sonar síns sjálfur: „Það var ekki einn blóðdropi, ekkert“

Hjalti Úrsus
Hjalti Úrsus Mynd: Skjáskot úr heimildarmyndinni Fall risans

Hjalti Úrsus talar við Hildi Maríu Sævars­dóttur um mál sonar síns, Árna Gils Hjalta­sonar, sem sat saklaus í fangelsi á sínum tíma í 277 daga, en hann hafði verið dæmdur í Héraðs­dómi Reykja­víkur til fjögurra ára fangelsis­vistar fyrir tilraun til manndráps árið 2017. Lands­réttur sýknaði svo Árni Gils í fyrra.

Árni Gils lést daginn eftir að viðtalið var tekið. Hér fyrir neðan er brot úr viðtalinu.

„Í byrjun var hann dæmdur fyrir morð­tilræði og settur í einangrun á Litla-Hrauni. Hann var búinn að vera í neyslu og alls konar rugli, þannig að ég hugsaði með mér að þarna væri kominn enda­punkturinn; nú gætum við kannski farið að byggja upp aftur,“ segir Hjalti Úrsus í viðtali við Hildi Maríu Sævars­dóttur um son sinn, Árna Gils, sem var dæmdur til fjögurra ára fangelsis­vistar fyrir tilraun til manndráps árið 2017.

Það var ekk­ert blóð á vett­vangi og það var ekk­ert að mann­inum.

„Hann sagði mér strax í byrjun að hann hefði ekki komið með neinn hníf. Það var ekkert blóð á vettvangi,“ segir Hjalti Úrsus og bætir við að sonur hans hefði sagt að hann hefði afvopnað mann sem réðst á hann, mann sem hann hafi ekkert vitað að hafi ætlað að hitta hann og hann hefði svo hent hnífnum í burtu. „Maðurinn stökk í burtu, hljóp í burtu, og tók hnífinn með sér. Það var ekkert blóð á vettvangi og það var ekkert að manninum. Og hann sagðist hafa verið edrú. Þeir sem eru búnir að vera í neyslu eru ekkert alltaf að segja satt,“ segir Hjalti Úrsus sem ákvað að skoða málið sjálfur.

Ansi ótrúverðugt

Árni hitti vinkonu sína og var þá maður með henni. Í frétt Vísis segir: „Árni var sakfelldur fyrir að hafa stungið annan mann með hnífi í höfuðið í átökum á milli þeirra við Leifa­sjoppu í Breið­holti í mars 2017. Fékk maðurinn gat í höfuð­kúpuna. Árni hefur neitað sök í málinu frá upphafi og haldið því fram að hann hafi aðeins varist árás mannsins sem hlaut stungu­sárið í höfuðið. Til átakanna kom þegar Árni kom að sjoppunni til að skila þáverandi vinkonu sinni bíl hennar og hundi sem hann var með. Maðurinn sem varð fyrir höfuð­áverkanum hafði verið með konunni í samkvæmi í íbúð nærri sjoppunni og fór með henni til móts við Árna.“ Frétta­blaðið er á meðal þeirra fjölmiðla sem fjölluðu um málið og í frétt þar segir meðal annars um atvikið: „Hún hafi lýst at­vikum þannig að brota­þoli hafi farið með henni út á bíla­planið þarna til að hitta Árna, því hún væri hrædd við hann þegar hann væri í svona annar­legu á­standi. Þegar þau hefðu komið til fundarins hafi Árni verið inni í bíl og þeir tveir eitt­hvað farið að ræða saman. Árni hefði svo skyndi­lega komið út úr bílnum, dregið fram hníf og stungið Aron í höfuðið. Öll átökin voru samkvæmt vitninu farþega megin við bílinn,“ segir Hjalti Úrsus. „Það var ekki einn blóðdropi. Ekkert. Miðað við að hann kom á sjúkra­húsið og það flæddi niður auga­brúnirnar. Blóð storknar á um 15 mínútum og þá voru um 40 mínútur síðan þetta gerðist. Engu að síður flæddi niður. Hann var svo vitlaus að taka sjálfur myndir af því. Ég fór að rannsaka þetta. Það var ekkert blóð. Það var rétt hjá honum. Maðurinn sagði fyrst þegar Árni var settur í varðhald og einangrun, að Árni hefði komið með hníf og stungið hann. Síðan þegar hann kom síðar í Héraðsdóm þá vissi hann að lögreglan var búin að tala við öll vitnin sem sáu hann labba út með hnífinn og þá breyttist sagan í það að hann hafi verið undir svo miklum áhrifum áfengis og eitur­lyfja að hann hefði gleymt því að hann tók með sér hnífinn. Það er rétt. Líklega hefur hnífurinn dottið í hendurnar á Árna eða eitthvað.“ Og Árni var dæmdur.

Og hann féllst á það og sagði að þetta væri ansi ótrú­verð­ugt.

„Svo var hann búinn að vera þessa 277 daga í varðhaldi og þá kom líka annað upp. Ég talaði þá við Leif rannsóknar­lögreglu­mann og ég sagði: „Leifur, þú sérð hvað þetta er mikil vitleysa: Hinn kom með hnífinn og það er ekkert blóð“ og ég fór að segja honum hvað þetta væri arfa­vitlaust. Og hann féllst á það og sagði að þetta væri ansi ótrú­verðugt. Það eru hans eigin orð. En þá sagði hann að Árni hefði verið á kafi í eitur­lyfjum. Kókaíni. Ég sagði: ókei. Ég fór þá líka að rannsaka það eins og hitt allt,“ segir Hjalti Úrsus og bætir við að það hafi ekki verið neitt blóðtöku­vottorð. Hann segir jafnframt að eitthvað hafi vantað upp á að fullnægjandi gögn fylgdu málinu. „Þau hafa líklega glatast eða týnst. Þannig að þeir týndu öllu.“

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá