Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Eldsvoði í Kópavogi – Reykkafarar björguðu fjórtán vistmönnum út

Kópavogshælið – Skjáskot úr frétt
Kópa­vogs­hælið – Skjáskot úr frétt

Það var undir morgun þann 13.janúar 1986 þegar mikill eldur kom upp á Kópa­vogshælinu. DV fjallaði um málið á sínum tíma en vel gekk að bjarga vist­mönnum út úr húsinu.

„Það gekk mjög fljótt fyrir sig að ná vist­mönnunum fjórtán út sem voru inn i álmunni sem eldurinn kom upp í. Við sendum þrjá reyk­kafara strax inn sem náðu fólkinu út. Það hefur tekið okkur 7-8 mínútur að ná vist­mönnunum út,“ sagði Arnþór Ingólfsson, varð­stjóri hjá Slökkviliði Reykja­víkur, sem var kallað út kl. rúmlega sex í morgun þegar eldur kom upp í einni álmu Kópa­vogs­hælisins.

Skjáskot af mynd í frétt­inni árið 1986

Að sögn varð­stjóra átti eldurinn upptök sín í herbergi við útidyr. Þegar slökkviliðið mætti á vettvang stóðu eldtungurnar út um glugga herbergisins og náðu upp í þakskegg hússins. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en talsvert mikill reykur var í gangi álmunnar.

„Það gekk vel að ná fólkinu út, það var fáklætt. Á nátt­fötunum. Við kölluðum strax starfs­fólk hælisins út. Vist­mennirnir voru fluttir á slysa­deild Borgar­spítalans í öryggis­skyni vegna hættu á reyk­eitrun. Tveir til þrír vistmenn fóru með hverjum sjúkrabíl,“ sagði Arnþór en mætti slökkviliðið á staðinn með fjóra slökkvibíla og sex sjúkra­bíla.

Skjáskot

Mikil mildi þótti hve greiðlega björgunar­starfið gekk og voru allir fjórtán vistmenn deildarinnar fluttir á slysa­deild. Flestir þeirra fengu reyk­eitrun vegna elds­voðans. . „Reyk­eitrunin er á misjöfnu stigi hjá sjúklingunum,“ sagði Guðmundur Eyjólfsson, læknir á Borgar­spítalanum, í samtali við DV um morguninn. Sagði hann sjúklingana vera mishressa. Sumir væru „slakir“ en aðrir hressir. Elds­upptök voru ókunn en slökkviliðið vann hetjudáð þennan morguninn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning