Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Kona á sjötugsaldri dæmd fyrir að hafa 55 milljónir af átta mönnum: Laug til um dauða barna sinna

Eldri kona, Þórunn, var dæmd í Héraðs­dómi Reykja­víkur til tveggja ára fangelsis­vistar fyrir að hafa með skipulögðum hættið haft um 55 milljónir af átta karl­mönnum. Dómurinn féll þann 29.október árið 2001 en brotin voru framin frá árinu 1992 til 2000.

Fórnalömb Þórunnar voru einstæðingar á aldrinum 44 til 83 ára, einnig voru þeir allir bændur. Þórunn hafði samband við Bænda­samtök Íslands í þeim tilgangi að fá upplýsingar um einstæða, roskna karlmenn, hún sagðist vera að leita sér að starfi sem ráðskona í sveit.

Saga Þórunnar

Í Helgar­blaði DV sem kom út þann 3.október árið 2001 var farið ítarlega í sögu Þórunnar. Hún var 66 ára þegar hún fór fyrir dóm, ógift móðir átta fullorðna barna. Hún átti einnig 17 barnabörn og fjögur barna­barnabörn. Þórunn fæddist í janúar árið 1934 á bæ, rétt fyrir utan Akureyri. Hún fór um 16 ára að vinna fyrir sér í vist á fínni heimilium Reykja­víkur  

Þórunn kynntist verðandi eigin­manni sínum árið 1953 en hann var sonur alþingis­manns sem hún starfaði fyrir. Þau áttu saman sjö börn en skyldu þegar það yngsta var fimm ára. Ferð Þórunnar lá þá í Hlíðar­hverfi í Reykjavík þar sem hún keypti húsnæði og lét gera á því tals­verðar endur­bætur. Vinir og vandamenn Þórunnar furðuðu sig á því hvernig Þórunn færi að því að borga fyrir þessar endur­bætur en hún keypti einnig ný húsgögn. Hún sinnti á þessum tíma ýmsum láglauna­störfum við ræstingar og þvott. Síðar flutti Þórunn í Breiðholt þar sem hún bjó enn þegar dómurinn féll yfir henni.

Þeir sem þekktu Þórunni lýstu henni sem góðum lygara, svo góðum að hún hafi jafnvel sjálf trúað lygunum. Hún var sögð hafa öflugt ýmyndunarafl og stórt skap sem birtist oftar en ekki í formi mikillar afbrýðisemi og tortryggni.

Þórunn fékk sinn fyrsta dóm árið 1987 en var þá dæmd í skilorðs­bundið fangelsi fyrir skjala­fals. Árið 1991 var hún svo dæmd í sex mánaða fangelsi fyrir svipuð brot og þau sem fjallað er um í grein DV árið 2001. Þá viðurkenndi hún að hafa notað peninginn sem hún hafði af fórna­lömbum sínum í sólarlandarferðir og gervi­tennur.

Fórnalömbin

Eins og fram hefur komið voru fórna­lömbin öll einstæðingar. Þórunn hafði mismikla peninga af hverjum þeirra en beitti sömu tækni á þá alla. Hún sagði ósatt til um veikindi barna og gekk svo langt að segjast hafa misst börn sín. Jafnframt sagðist hún vera sárafátæk og heimilis­laus, ætti í engin hús að vernda og spilaði þannig á meðaumkun mannana. Þórunn hitti aðeins tvo þeirra sex manna sem hún sveik. Annar þeirra lét Þórunni hafa lang stærsta hluta fjar­magnsins eða um 23,6 milljónir, hún var tíður gestur á heimili hans.

Þórunni var gert að greiða fjórum fórna­lömbum sínum samtals 3,2 milljónir í skaða­bætur auk vaxta

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning