Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

TARAMAR – Stórkostlegt verðmæti úr hafdjúpunum

Dr. Guðrún Marteinsdóttir leiðir TARAMAR
Dr. Guðrún Mart­eins­dóttir leiðir TARAMAR Mynd: Stefán / Stefán Karlsson

TARAMAR-húðvörurnar byggja á sjávar­fangi og eru þróaðar í hámarks gæðum með mikla sérstöðu fyrir lúxus­markaði. Öll þróun hjá TARAMAR byggir á rann­sóknum í sjávar­líffræði og matvæla­fræði með áherslu á lífvirk efni. Stofn­endur fyrir­tækisins stefndu að því að verða fyrst á markað með tæknilega útfærðar húðvörur sem í raun geta endur­byggt húðina en eru um leið svo hreinar að það má boða þær. Vörurnar hafa verið í sölu hér heima og í Kína og frekari kynningar á þeim á síðasta ári eru að bera árangur og fyrsta markaðs­setning inn á Dubai-svæðið á sér nú stað. Einnig er mikill áhugi hjá sölu­aðilum á lúxus­vörum í Evrópu og telja má líklegt að vörurnar verði komnar inn á þá markaði síðar á þessu ári. 

Nýsköpun sem TARAMAR stendur fyrir byggir á sjávar­fangi og felur í sér mjög mikla verðmæt­aukningu. Aðferðirnar sem TARAMAR hefur þróað breyta sjávar­fangi í dýrar lúxus­húðvörur og bjóða upp á lausnir við vanda­málum sem hafa mikil áhrif á heilsu manna. „Verðmæt­aukningin getur numið allt að 3600% frá þurru þangmjöli í lúxus­húðvöru sem hefur virkni til að umbreyta og endur­byggja húðina á greini­legan hátt sem sjá má með berum augum,“ segir Guðrún Marteins­dóttir, stofnandi og framkvæmda­stjóri TARAMAR.

„Öll þróun hjá TARAMAR byggir á rann­sóknum í sjávar­líffræði og matvæla­fræði við Háskóla Íslands og Rutgers University, NJ, USA. Þessar rann­sóknir hafa staðið yfir langt tímabil, eða allt frá 1979, og standa enn. Rann­sóknirnar spanna breitt svið eða allt frá áhrifum vatns­virkni á vítamín, einangrun lífvirkra efna og áhrifa þeirra á lifandi vefi sem og þróun og notkun á náttúru­legum ferjum sem ferja lífvirku efnin djúpt inn í húðina eða auðvelda upptöku þeirra í meltingar­vegi. Alls hafa verið birtar fleiri en 80 ritrýndar greinar sem tengjast þessari þróun á einn eða annan hátt.“

Guðrún Mart­eins­dóttir Taramar

Einkaleyfavarin framleiðsluaðferð NoTox®

Strax frá upphafi einsettu Guðrún Marteins­dóttir og Kristberg Krist­bergsson, stofn­endur TARAMAR og prófessorar við Háskóla Íslands, að gera TARAMAR-húðvörunar afburða hreinar og afgerandi lífvirkar. Þannig stefndu þau að því að verða fyrst á markað með tæknilega útfærðar húðvörur sem í raun geta endur­byggt húðina en eru um leið svo hreinar að það má boða þær. Þannig myndu þau brúa bilið á milli organic/grænna húðvara og tæknilegra húðvara sem drægju úr sýnilegum áhrifum öldrunar.

„Enn þann dag í dag eru slíkar vörur svo til ófáanlegar en flestar tæknilega útfærðar húðvörur innihalda fjölda efna sem talin eru geta verið skaðleg fyrir húð og innri kerfi líkamans.“ Til að ná þessu markmiði þróuðu þau nýja aðferð til að framleiða húðvörur, NoTox. Þessi aðferð er varin með einka­leyfi og er að mörgu leyti frábrugðin venju­legum aðferðum sem notaðar eru í þessum tilgangi.

Gleypa í sig skaðlega geisla sólarinnar

Rann­sóknir TARAMAR sýndu að lífvirk efni úr þörungum hafa marg­víslega virkni. Sum af þessum efnum nýtast í sólar­varnir þar sem þau gleypa í sig skaðlega geisla sólarinnar. „Þannig hefur TARAMAR þróað sólarvörn sem inni­heldur engin skaðlega efni en eins og margir vita fer mjög slæmt orð af sólar­vörnum og flestar innihalda efni sem eru bæði skaðleg fyrir menn og lífríki. Í dag hafa margar baðstrandir bannað alla notkun á sólar­vörnum vegna skaðlegra áhrifa á lífríkið í grunnsjó á strandsvæðum.“

Þangið stoppar oxun og áhrif sindurefna

Önnur efni sem eru einangruð úr þangi og þörungum stoppa oxun og draga úr virkni sindur­efna. „Sindur­efni eru skaðleg efni sem eru megin­áhrifa­valdar í öldrun húðarinnar.  Þangið við Ísland hefur sérstak­lega mikla getu til að vinna á móti oxun og áhrifum sindur­efna. Samþætting þessara efna inn í húðformúlur skapar einstakar vörur sem vinna með húðina frá fyrsta degi án þess að innihalda nein skaðleg efni.“

Ein af þang­tegundunum við Ísland inni­heldur efni sem stoppar niðurbrot á byggingar­efnum húðarinnar, kollagen, elastin og tyrosine. „Þessi uppgötvun er í raun stórkostleg og hefur meiriháttar áhrif til góðs inn í húðvöru­línu TARAMAR. Niðurbrot stoð­vefjanna er alltaf í gangi, bæði vegna ferla sem eiga sér stað í líkamanum og líka vegna utan­aðkomandi áhrifa, meðal annars frá húðvörum og efnum sem við berum á húðina. Lífvirku efnin í þanginu innihalda efni sem stoppa þessa ensím­virkni og stuðla þannig að sterkari stoðvef og betri húð.“

Rann­sóknir TARAMAR sýna að lífvirk efni úr þanginu hafa svo marg­víslega virkni. Sum stuðla að ferlum sem draga úr þrota og bólgum og önnur styrkja frumu­himnur og mýkja horn­húðina. „Í heildina má segja að þangið okkar kæra sé algjör fjár­sjóður hvað varðar efni sem eru góð fyrir húð og líkama.“

Fjármögnun nýsköpunarinnar

TARAMAR-vörurnar fóru fyrst inn á íslenska markaðinn seint á árinu 2015. Síðan þá hafa margir erlendir fjár­festar sýnt áhuga á fyrir­tækinu en í flestum tilfellum hefur áhuginn beinst að því að ná yfir stjórn á hugviti fyrir­tækisins og jafnvel flytja það úr landi.

„TARAMAR hefur staðið af sér þetta árreiti en stefna fyrir­tækisins er að byggja upp atvinnu á Íslandi og nýta íslenskar auðlindir og láta verðmæta­sköpunina eiga sér stað hér. Fram­leiðsla TARAMAR er í Sandgerði og í dag vinna fjórar konur úr Sandgerði og Keflavík við fram­leiðslu og pökkun.

Fáar af hinum hefð­bundnu fjár­festingar­leiðum, svo sem nýsköpunar­sjóðir, hafa stutt við bakið á TARAMAR. Eignarhalds­félag Suðurnesja er eina félagið sem hefur komið inn með eitthvað fjármagn af ráði og í raun væri TARAMAR ekki til ef þeirra hefði ekki notið við.

Til að standa undir kostnaði við þróun og markaðs­setningu hefur TARAMAR farið þá leið að bjóða almennum borgurum hluti til sölu og í dag hafa fleiri en 500 Íslendingar keypt hluti í TARAMAR og fengið í staðinn aðgang að vörum TARAMAR á mjög hagstæðu verði. Margir af þessum hluthöfum hafa tekið virkan þátt í starfsemi TARAMAR og haft áhrif á þróun með prófunum og umsögnum. Auk þess rekur félagið vildar­klúbb sem nú inni­heldur rúmlega 6000 manns. Þannig er félagið í stöðugu sambandi við neytendur og nýtir góðs af reynslu og upplifunum vildar­klúbbs­meðlima en í hverjum mánuði berast margar sögur af uppgötvunum og virkni varanna.“

Fyrir þá sem hafa áhuga á að taka þátt í þróun og markassetningu TARAMAR sem einn af eigendunum þá má finna upplýsingar hér:  www.taramar.is/hluthafar og þeir sem vilja ganga í vildar­klúbbinn er bent á www.taramar.is/vildarklubbur

Sérstaða og markaðssetning

„TARAMAR hefur þróað ákaflega verðmætar vörur og þekking félagsins er mikil og dýrmæt. Kynningar á húðvörunum erlendis á síðasta ári eru að bera árangur og fyrsta markaðs­setning inn á Dubai-svæðið á sér stað í þessum töluðum orðum. Einnig er mikill áhugi hjá sölu­aðilum á lúxus­vörum í Evrópu og telja má líklegt að vörurnar verði komnar inn á þá markaði síðar á þessu ári.

Það sem gerir TARAMAR vörurnar svo sérstakar og áhuga­verðar fyrir þessa markaði er að þær eru íslenskar og byggja á íslensku hugviti. Allar TARAMAR-vörurnar eru fram­leiddar frá A-Ö á Íslandi, við afburða hreinar aðstæður sem mætti næstum líkja við skurð­stofu. Þetta er mjög sérstakt því oftar en ekki leikur vafi á uppruna vara í þessum iðnaði og oft kemur í ljós að vörur sem eru kenndar við eitt land eru búnar til í öðru landi. Hrein­leiki TARAMAR-varanna skapar líka mjög mikla sérstöðu en neytendur eru nú meðvitaðri um innihalds­efni og láta ekki bjóða sér hvað sem er. Auk þessa er virkni TARAMAR-varanna svo mikil að hún kemur á óvart. Þessi virkni hefur verið sann­prófuð af óháðum aðilum og TARAMAR stundar einnig prófanir til að auka skilning á heilandi ferlum í húðinni. Þannig kemur í ljós að jákvæðar breytingar í húðinni eiga sér oft stað mjög hratt eftir að viðkomandi skiptir yfir í 100% hreinar og lífvirkar vörur eins og TARAMAR.“

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í prófunum hjá TARAMAR er bent á að hafa samband við Írisi Thordersen ([email protected]).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt