Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Jóhanna Vigdís greip ráðherra sem féll í yfirlið: „Ég er ekkert heljarmenni en ég greip ráðherrann“

Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir er frábær fréttakona
Jóhanna Vigdís Hjalta­dóttir er frá­bær frétta­kona

„Ég er ekkert heljarmenni en ég greip ráðherrann og kom þannig í veg fyrir að Ingibjörg félli í gólfið,“ sagði Jóhanna Vigdís Hjalta­dóttir, frétta­maður Ríkis­sjón­varpsins, í samtali við DV árið 2001. Var það þann 17.janúar 2001 þegar Ingibjörg Pálma­dóttir, fyrrum heilbrigðis­ráðherra, féll í yfirlið í beinni sjónvarps­útsendingu frá Alþingi.  Jóhanna Vigdís hafði fengið Ingibjörgu og Össur Skarp­héðinsson í viðtal. Ingibjörg var vart búin að segja nema nokkur orð þegar hún féll fram yfir sig. Í frétt DV segir að ráðherrann hafi verið „afmyndaður af kvölum í andliti og rjúfa þurfti beina frétta­útsendingu.‘‘

Vigdísi var brugðið og sagðist alls ekki hafa átt von á þessu. „Ingibjörg var fljót að ná sér og var til í að halda viðtalinu áfram. Þá stóð hún sig líka vel,“ sagði Jóhanna Vigdís sem sjálf var enn að jafna sig þegar viðtalið var tekið við hana, morguninn eftir uppákomuna. Össur Skarp­héðinsson, formaður Samfylkingarinnar, stóð við hlið Ingibjargar þegar leið yfir hana. Honum var einnig brugðið en sagðist sem betur fer hafa heyrt að líðan ráðherrans væri góð. Vildi hann að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Þetta kvöld var það ótrúleg tilviljun að Sveinn Magnússon, læknir og starfs­maður heilbrigðis­ráðuneytisins, var staddur nærri Alþingis­húsinu. Hann var akandi á leiðinni heim til sín með útvarpið í gangi og heyrði því hvað gekk á á Alþingi. Sveinn var ekki lengi að snara sér út úr bílnum og hlaupa niður í Alþingishús þar sem hann hlúði að ráðherranum.

Ingi­björg er ákveðin

Eftir að Jóhanna hafði lokið viðtalinu við Ingibjörgu fylgdi Sveinn henni niður á spítala þar sem hún gekkst undir skoðun. Ísólfur Gylfi Pálmason, fyrrum alþingis­maður og bróðir Ingibjargar, sagði í viðtali við DV að systur sinni liði vel og ætti að hvíla sig fram yfir helgina – Skýringin var þreyta. „Mér skilst að héma sé um ógurlega ofþreytu að ræða sem braust svona fram. En það er harka í genunum hjá okkur og það skýrir hvers vegna systir mín treysti sér til að ljúka sjónvarps­viðtalinu þrátt fyrir að hafa fallið í yfirlið,“ sagði Ísólfur og bætti við að systir sín væri energísk og gleymdi stundum að borða þegar mikið er að gera.

Heimild: Tímarit.is DV

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá