Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Beðin afsökunar 50 árum síðar: „Vöruðu hana við að hún yrði borin af sviðinu“

Samsett mynd
Samsett mynd

Sacheen Littlefeather, sem er af Apache og Yauqui-ættum var loks beðin afsökunar af bandarísku kvikmynda­akademían, eftir 50 ára bið.

Marlon Brando vann til Óskars­verðlaun fyrir leik sinn í kvik­myndinni Guðföðurnum, en hann bað Littlefeather um að afþakka verð­launin fyrir hans hönd. Brando bað hana að gera þetta fyrir sig í ljósi þeirrar illu útreiðar sem innfæddir Ameríku­menn hefðu mátt þola í bandarískum kvik­myndum. Þegar hún tók á móti verð­laununum voru hróp gerð að henni.

Í salnum á þessum tíma mátti heyra hávært baul og klapp í salnum eftir að Littlefeather lauk máli sínu. Þá hafði Brando samið fimmtán blaðsíðna ræðu, en starfs­menn hátíðarinnar vöruðu hana við að hún yrði borin af sviðinu talaði hún lengur en 45 sekúndur.

Sýndi aðdáunarvert hugrekki

Akademían sendi Littlefeather afsökunar­bréf í júní en greindi frá efni þess í dag. Þar segir að þau hrakyrði og árásir sem hún mátti þola vegna yfir­lýsingarinnar hafi verið óréttmæt og ástæðu­laus.

Akademían segir Littlefeather hafa sýnt aðdáunar­vert hugrekki, en ekki notið verð­skuldaðrar virðingar fyrir.

Sömuleiðis baðst Akademían afsökunar á þeim áhrifum sem framferði gesta við hátíðina 1973 og að henni lokinni hefði haft á líðan hennar og kvikmynda­feril.

Littlefeather sagði frá því nokkru eftir atvikið að öryggis­verðir hefðu haldið vestra­stjörnunni John Wayne frá því að ráðast á hana. Það atvik hefur nýlega verið borið saman við kinn­hestinn sem Will Smith veitti Chris Rock á Óskars­verðlauna­hátíðinni í ár.

Kynþáttafordómar innan kvikmyndaiðnaðarins

Littlefeather segist eiga ættir að rekja til þolinmóðs fólks og segir stórkostlegt hve mjög viðhorfið hefur breyst á þessum fimmtíu árum, þegar hún er spurð út í þann langa tíma sem leið uns afsökunar­beiðnin barst, segir í The Guardian.

Nýtt kvik­myndasafn í Los Angeles opnaði fyrir tæpu ári þar sem áætlað er að sýna allar hliðar kvik­mynda­sögunnar, meðal annars kynþátta­fordóma sem hafa lifað innan kvikmynda­iðnaðarins. Við sérstaka athöfn í safninu, hefur henni verið boðið að taka til máls 17. september næst­komandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið