Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Stefán Karlsson er látinn: Minning um leiðtoga og yndislega manneskju lifir

|
|
Stefán

Stefán Karlsson er látinn langt fyrir aldur fram. Greint er frá andláti Stefáns á heimasíðu Vals. Stefán var framkvæmda­stjóri Vals í tvö ár og stjórnar­maður í hand­knattleiks­deild félagsins.

Stefáni er lýst sem afar vönduðum manni, góðhjörtuðum og ráðagóðum. Stefán var einnig mikill leiðtogi og tók hann á móti öllum glaðbeittur á svip og bros hans leið fólki seint úr minni.

Á Facebook-síðu Vals segir:

Stefán vann í rúmlega 20 ár í kringum Knattspyrnu­félagið Val í mörgum lykil­hlutverkum. Hann var m.a. formaður hand­knattleiks­deildar, framkvæmdar­stjóri félagsins og fjármála­stjóri ásamt fjölmörgum hlut­verkum í einstökum verkefnum og því sem snéri að vinnu á bak við tjöldin við að gera starf félagsins betra.

Á heimasíðu Vals segir: „Knattspyrnu­félagið Valur sendir samúðar­kveðjur til eiginkonu Stefáns, Sigur­laugar Rúnars­dóttur, sona þeirra, Kristófers, Rúnars, Ingimars og annara fjölskyldu­meðlima og vina.

Missir þeirra er mikill.

Minning um frábæran leiðtoga og yndis­legan félaga, einn okkar allra bestu, mun lifa meðal okkar í Vals­samfélaginu.“

Fjölmargir minnast Stefáns á samfélags­miðlum. Magnús Guðmundsson skrifar: „Þetta eru skelfilegar fréttir. Stefán var einstak­lega góður og vandaður maður. Hans verður sárt saknað en minningin um góðan dreng lifa. Innilegustu samúðar­kveðjur til fjöl­skyldu hans og vina.“

Ingvar Kristinn segir: „Brosandi andlitið sem ávallt tók á móti manni þegar maður hitti Stefán gleymir maður seint. Sann­kallaður heiður að fá að kynnast honum. Sendi innilegar samúðar­kveðjur til fjöl­skyldu Stefáns og allra Valsmanna.“

Handbolta­kempan Heimir Örn Árnason segir: „Samúðar­kveðjur til fjöl­skyldu og Valsmanna!! Stefán var gull af manni og það var heiður að vinna með honum!“

Hilmar Þór Norðfjörð skrifar:

„Ég kynntist Stebba þegar ég var með Sport.is en glaðleitari dreng var erfitt að finna. Hann tók alltaf á móti öllum með stóru brosi og var alltaf til í spjall eða leysa mál sem komu að fjöl­miðlum.

Það var því erfitt að sjá að þessi dáða­drengur hafi yfirgefið okkur, langt fyrir aldur fram. Það sýnir okkur að ekkert er sjálfsagt í þessu ferðalagi okkar og hver sem er getur heltst úr lestinni án fyrirvara.

Ég sendi mínar innilegustu samúðar­kveðjur til fjöl­skyldu og vina Stebba.

Hvíl í friði.

Þá segir einnig á heimasíðu Vals að liðið muni leika með sorgar­bönd þessa helgi.

„Blessuð sé minn­ing Stefáns Karls­sonar.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra