Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Jak Knight er látinn, aðeins 28 ára að aldri: „Við elskum þig að eilífu Jak“

Jak Knight var aðeins 28 ára gamall
Jak Knight var aðeins 28 ára gam­all Mynd: Trausti Hafsteinsson

Hinn ungi og uppruna­legi uppi­standari og leikari, Jak Knight er látinn. Knight, sem meðal annars las fyrir DeVon í hinum vinsælu teiknimynda­seríum Big Mouth á Netflix, var aðeins 28 ára.

Samkvæmt fjöldi heimilda, lést leikarinn á fimmtudags­kvöld í Los Angeles. Fjöl­skylda Knight staðfesti andlátið en gaf ekki upp dánar­orsök og biður um frið frá fjöl­miðlum.

Entertainment Tonight segir að dauði Knight hafi komið Hollywood á óvart en hann var rísandi stjarna þar á bæ en hann hafði þrátt fyrir ungan aldur getið sér gott orð sem uppi­standari. Hafði hann meðal annars hitað upp fyrir Dave Chappelle. Knight skrifaði einnig fimm seríur af Big Mouth-teiknimynda­þáttunum vinsælu á Netflix en einnig talaði hann fyrir DeVon í þáttunum.

Big Mouth hafa slegið ræki­lega í gegn á Netflix

Þá var hann einn af þeim sem skrifuðu þáttinn Black-ish sem sló í gegn. Nýjasta verkefnið sem hann skapaði og lék í voru gaman­þættirnir Bust Down þar sem Knight lék ásamt Chris Redd, Sam Jay og Langston Kerman.

Samkvæmt Entertainment Tonight hafði Knight einnig lokið nýlega við að leika í kvik­myndinni First Time Female Director, ásamt þeim Chelsea Peretti, Amy Poehler og Megan Mullally. Knight, sem er frá Seattle eyddi annars mestum tíma sínum í að túra um landið sem uppi­standari. Árið 2018 kom hann fram í Netflix þættinum Comedian Lineup.

Í kjölfar dauða Knight hafa margir skrifað falleg orð um hann en stjórn­endur Peacock og Universal Television, sem streymdu og fram­leiddu Bust Down þættina, gáfu út sameiginlega tilkynningu þar sem Knight var kallaður „snilldar grínisti, hugsjóna­maður og lista­maður.“ Einnig stóð í tilkynningunni: „Við vorum öll heppin að hafa upplifað mikilfeng­leika hans. Hjörtu okkar eru með fjöl­skyldu Jak, vini hans og samfélagi, á þessum sorgar­tíma.“

Comedy Central tvítaði ljósmynd af Knight með texta: „Jak Knight var sjúklega fyndinn og heiðar­legur grínisti. Við munum sakna hans gríðar­lega.“

Twitter-reikningur hins fornfræga skemmtistaðar, The Hollywood Improv birti einnig færslu þar sem minnst var Jak Knight. „RIP Jak Knight. Fyrir þó nokkrum árum byrjaði hinn ungi Jak Knight að koma upp á svið til okkar á „open mic“ kvöld og það var greinilegt frá upphafi að hann var sérstakur. Jak var stórkost­legur handrits­höfundur og sviðs­listamaður. Hann hafði margt eftir ósagt og við erum algjör­lega miður okkar að fá ekki að heyra það. Við elskum þig að eilífu Jak.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt