Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Hrottalegasti ástríðuglæpur Íslandssögunnar: Morðinginn gengur laus

Mynd úr myndabanka
Mynd úr mynda­banka

Sunnu­daginn 15.ágúst árið 2010 fannst 37 ára karlmaður látinn á heimili sínu í Hafnar­firði. Strax þótti augljóst að manninum hafði verið ráðinn bani. Enginn í nágrenninu varð var við neitt óeðlilegt þessa örlaga­ríku nótt.

Gunnar Rúnar Sigurþórsson var 22 ára þegar hann birti myndband þar sem hann játaði ást sína á vinkonu sinni á miðlinum Youtube, hún var þó í föstu sambandi og sagði honum að tilfinningarnar væru ekki endurgoldnar.

Vinskapurinn hélt þó áfram og fóru þau stundum saman út að skemmta sér, oft með Hannesi, unnusta vinkonunnar. Gunnar var velkominn á heimili parsins og fékk stundum gistingu hjá þeim, aldrei hafði neinn grunað hvað byggi innra með Gunnari.

Hannes var duglegur og vinamargur, hann starfaði sem forstjóri sælgætis­verksmiðjunnar Góu ásamt því að reka KFC veitinga­staði í Litháen. Mikil sorg ríkti þegar fréttir sögðu frá því að hann hafi hlotið hrottaleg örlög; hann var stunginn til bana á heimili sínu. Enginn gat hugsað sér að neinn vildi gera Hannesi eitthvað illt – þar til leiðin lá að Youtube myndbandi Gunnars Rúnars.

Tveimur dögum eftir morðið, þann 17 ágúst, var Gunnar hand­tekinn; honum var haldið nætur­langt, en sleppt að loknum yfirheyrslum. Það var síðan tíu dögum síðar sem Gunnar var hand­tekinn aftur; og í þetta sinn var krafist fjögurra vikna gæslu­varðhalds yfir honum: En ný gögn í málinu sýndu að rökstuddur grunur var fyrir hendi um að hann ætti aðild að morðinu á Hannesi.

Gunnar neitaði sök og áfrýjaði gæslu­varðhaldinu til Hæstaréttar. Hann var síðar fluttur á Litla-Hraun í einangrun. Greint var frá því í fjöl­miðlum að blóðugur skór Gunnars hafi passað við skófar sem fannst á vettvangi.

Laugar­daginn 4.september 2010 játaði Gunnar að hafa orðið Hannesi að bana; morðið var framið á milli klukkan fimm og tíu, 15.ágúst, og þótti ljóst að um ástríðu­glæp væri að ræða.

Að mati geðlæknis var Gunnar talinn sakhæfur. Í skýslu læknisins kom þetta meðal annars fram:

„Gunnar Rúnar er með vissa þráhyggju­þætti, stífur á sinni meiningu og á erfitt með að aðlagast vissum reglum. Hann er markviss og vel meðvitaður um hvað hann vill og hvað hann ætlar sér. Athygli vekur hversu fljótt ást hans til D hvarf, en slíkt er yfirleitt á skjön við raun­verulega ástsýki (erotomaniu), slíkt hverfur yfirleitt aldrei nema með lyfja­meðferð eða annarri mjög lang­varandi meðferð.“

Gunnar var dæmdur í 16 ára fangelsi – en gengur nú laus, aðeins 12 árum eftir morðið.

„Í dómi Héraðs­dóms Reykjaness kom fram að Gunnar Rúnar sé talinn hættu­legur og hafi sjálfur lýst ofbeldis­fullum hugsunum gagnvart fanga, meðan hann hefur sætt gæslu­varðhaldi.

Því þótti nauðsynlegt vegna réttar­öryggis, að hann sæti strangri öryggis­gæslu auk meðferðar.

Hann var dæmdur í héraði til að greiða foreldrum Hannesar hvoru um sig átján hundruð þúsund krónur í bætur og tæpar þrettán hundruð þúsund krónur í útfarar­kostnað,“ sagði í frétt RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning