Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Illugi vill afnema guð: „Hann endar alltaf á því að gera út hnífamenn“

Illugi Jökulsson.
Illugi Jök­uls­son.

Illugi Jökulsson vill afnema guð.

Illugi Jökulsson, rithöfundur og fjölmiðla­maður skrifaði nokkuð harða Facebook-færslu í kjölfar frétta af hnífaárás sem gerð var á rithöfundinn Salman Rushdie í New York-borg í gær.

Birti hinn skeleggi fjölmiðla­maður frétt af árásinni og skrifaði eftir­farandi texta við:

„Í meira en 30 ár hefur Rushdie verið í meiri eða minni felum af því hann móðgaði trúarnöttara. Ég efast ekki um að sá sem réðist að honum með hnífs­lögum í New York í gær sé fullkomlega einlægur trúmaður. Það er kominn tími til að afnema guð. Hann endar alltaf á því að gera út hnífamenn.“

Færslan féll heldur betur í kramið en yfir 160 hafa líkað við hana. Þó nokkrir skrifa athuga­semdir við hana en sitt sýnist hverjum.

Sigursteinn Másson skrifaði til varnar Guði: „Hefur óttalega lítið með almættið að gera held ég. Það er frekar að það þurfi að afnema brögðin illu sem trúar­brögð eru.“

Martin nokkur er ansi heimspeki­legur í sinni athugasemd: „Ef aðeins guð væri uppruni eða eina viðfang trúar. Það er hins vegar í eðli okkar að trúa á alls kyns fyrirbæri og alls konar kreddur. Trúin blindar okkur svo fyrir hlutlægum raun­veruleika og hamlar samkennd okkar.

Við þurfum að efla samkennd, auðmýkt og forvitni fyrir öllu mögulegu.“

Ísak skrifaði einnig athugasemd: „“Að stúta Guði, svo að stútarar stúti ekki“??? Er það ekki ofsatrú líka?“
Guðmundur nokkur svaraði Ísak með stuttu svarið: „Nei.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið