Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Telja að kynóður hákarl hafi rifið ferðamenn í sundur

Tvær hákarla­árásir hafa orðið við strendur Egypta­lands með stuttu millibili. Báðar enduðu þær með dauða fórnar­lambanna, sem voru hreinlega rifin í sundur af rándýrinu. Sérfræðingar segja hugsanlegt að árásirnar tengist fengitíma, en aðrir telja að hætta á slíku skapist vegna dýrahræja sem kastað sé í sjóinn af skipum.

Það var á vinsælum ferðamanna­stað við Rauða­hafið að tvær konur voru tættar í sundur af hákörlum, með einungis tveggja daga millibili. Þetta kemur fram hjá breska blaðinu The Sun.

Árásirnar áttu sér báðar stað við Sahl Hasheesh-flóa í nágrenni borgarinnar Hurghada í Egypta­landi, í 96 kílómetra fjarlægð frá vinsæla ferðamanna­staðnum Sharm El Sheikh. 68 ára kona sem var þar í fríi lést eftir að hákarl réðist á hana þegar hún var á sundi í sjónum og tætti af henni handlegg og fótlegg. Einungis tveimur dögum síðar fannst rúmensk kona látin eftir árás hákarls. Um 600 metrar voru á milli staðanna þar sem ráðist var á fyrri konuna og þar sem sú seinni fannst.

Árásir hákarla eru afar sjaldgæfar í Rauða­hafinu og því rýna sérfræðingar nú í málið. Umhverfis­nefnd á svæðinu telur árásirnar tengjast fengitíma hákarla og að um „kynóðan“ hákarl hafi verið að ræða.

Fengitími hákarla stendur yfir frá miðjum apríl fram til enda júlí. Á þeim tíma geta hákarlarnir orðið árásar­hneigðir. Sérfræðingar telja mögulegt að árásirnar hafi verið framdar af sama hákarlinum.

Sam Purkis, sérfræðingur hjá Háskólanum í Miami sagðist í samtali við The Sun telja það líklegra að eitthvað hafi valdið því að fleiri hákarlar komu svo nálægt yfir­borðinu á sama tímabili. Í því samhengi nefndi hann að vöru­flutninga­skip hafi fleygt dýra­hræjum í Rauða­hafið.

„Það leiðir hákarla að yfir­borðinu að róta eftir æti, sem kemur þeim í návígi við fólk á sundi,“ segir hann.

Rauða­hafið hefur þá sérstöðu að vera afar djúpt, nálægt ströndunum. „Það þýðir að stærri dýr koma nær ströndunum, í saman­burði við grynnri sjó nálægt strand­línum,“ segir Purkis.

„Flestir hákarlar halda sig í opnum höfum, ekki nálægt ströndum, þannig að mannfólk myndi yfirleitt ekki komast í návígi við þá, en Rauða hafið er öðruvísi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn