Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Vítalía gefur skýrslu hjá lögreglu

Vítalía Lazareva hefur gefiið skýrslu hjá lögreglu vegna kæru sinnar á hendur þeim Þórði Má Jóhannessyni, Hreggviði Jónssyni og Ara Edwald.

Lögmenn mannanna þriggja lýstu því yfir við fjölmiðla nýverið að engin kæra hefði verið lögð fram gegn þeim vegna meints kynferðis­brots í sumar­bústað í Skorradag í desember árið 2020. Þetta sögðu lögmennirnir í kjölfar þess að mennirnir kærðu þau Vítalíu og Arnar Grant fyrir tilraun til fjár­kúgunar. Áður hafði komið fram að Vítalía Lazareva hefði lagt fram kæru á hendur mönnunum en væri ekki búin að fara í skýrslu­töku.

Mikið fjaðrafok varð í fjöl­miðlum eftir að mennirnir þrír lögðu fram kæru sína og síðar eftir að fullyrt var að engin kæra á hendur þeim vegna kynferðis­brots lægi fyrir. Vítalía lýsti því yfir á Twitter að hún hefði ekki vitað betur en að málið væri í ferli; að hún hefði fyllt út form vegna málsins og farið yfir málavexti, skriflega.

Samkvæmt heimildum gaf Vítalía formlega skýrslu vegna málsins síðastliðinn mánudag.

Vítalía Lazareva kom fram í hlaðvarps­þættinum Eigin konur í janúar síðastliðnum og lýsti þar meðal annars kynferðis­ofbeldi sem hún sagðist hafa orðið fyrir af höndum þriggja þjóð­þekktra, áhrifa­manna í samfélaginu, í sumar­bústað sem hún var stödd í með þáverandi kærasta sínum, Arnari Grant. Hún nafn­greindi mennina ekki í þættinum en hafði þó gert það á Instagram í október á síðasta ári. Málið fór hátt í fjöl­miðlum og að endingu stigu þeir Þórður Már Jóhannesson, Hreggviður Jónsson og Ari Edwald allir til hliðar eða hættu í stöðum sínum; Þórður Már sem stjórnar­formaður Festar, Hreggviður úr stjórn Veritas og Ari sem framkvæmda­stjóri Ísey útflutnings.

Áður hefur komið fram að þöggunar­samningar hafi verið á borðinu í máli Vítalíu og þremenninganna. Þeir voru sagðir hafa viljað ljúka málinu utan dómstóla og greiða Vítalíu ákveðna upphæð fyrir það. Í kæru þeirra á hendur þeim Vítalíu og Arnari Grant kemur fram að þau hafi reynt að knýja fram 150 milljónir vegna málsins. Stundin greindi fyrst frá málinu.

Arnar Grant kom fram í viðtali við RÚV síðastliðinn föstudag og sagðist þar hafna öllum ásökunum mannanna um fjárkúgun. Hann hafði áður sent frá sér yfir­lýsingu þar sem hann sagði kæru mannanna fráleita tilraun til þess að afvega­leiða umræðuna. Hann sagði einnig að um væri að ræða tilraun til þess að draga úr trúverðug­leika hans sjálfs sem lykil­vitnis í máli Vítalíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið