Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Kröfufundur vegna trans sundkvenna og keppnisbanns: „Mismunun og útilokun á trans fólki“

Klukkan sex í dag verður haldinn kröfu­fundur fyrir utan skrif­stofur Íþrótta­sambands Íslands og Sund­sambands Íslands. Þar verður reglum sem banna trans konum að keppa á heims­meistara­mótum í sundi mótmælt. RÚV greinir frá þessu.

Tilgangur kröfu­fundarins er að mótmæla reglum sem Alþjóða sund­sambandið samþykkti í vor, sem banna trans konum að keppa á heims­meistara­mótum í sundi. Þann 19. júní bárust fregnir af málinu. Fulltrúar Sund­sambands Íslands voru meðal þeirra sem greiddu atkvæði með reglunum.

Að fundinum standa bæði félög hinsegin­fólks og kven­réttinda­samtök, en Trans Ísland er til að mynda meðal þeirra fimmtán samtaka sem sendu frá sér yfir­lýsingu vegna málsins 1. júlí.

„Sund­samband Íslands (SSÍ) kaus með reglunum þrátt fyrir að þær byggi á mismunun og útilokun á trans fólki, og sérstak­lega trans konum,“ segir í yfir­lýsingunni sem birt var í Frétta­blaðinu.

Þar segir einnig að fólk sem hafi æft íþróttir með þann draum að verða afreks­íþróttafólk viti að sá draumur geri snemma vart við sig.

„Þegar íþrótta­fólki, hvort sem er börnum, unglingum eða full­orðnum, er sagt að þau geti æft eins og þau vilja en að þau muni ekki vera velkomin á afreksmót, þá er það mismunun. Þetta eru nákvæmlega þau skilaboð sem SSÍ hefur sent trans sundfólki á Íslandi, sérstak­lega trans konum.“

Í yfir­lýsingunni segir einnig að í Kastljós­viðtali við formann Sund­sambands Íslands þann 20. júní síðastliðinn hafi komið í ljós að SSÍ hafi ekki kynnt sér málin til hlítar áður en ákvörðun var tekin um að greiða atkvæði með reglunum. Sambandið er sagt hafa kosið með „mismunun og fordómum“.

Í tilkynningunni segir einnig:
„Þögnin sem ríkt hefur á meðal allra annarra íslenskra íþrótta­bandalaga, þar á meðal hjá Íþrótta­sambandi Íslands, varðandi þá afstöðu SSÍ að kjósa með útilokun trans kvenna úr afreks­keppnum er ógnvænleg. Vari þessi þögn mikið lengur er ekki hægt að túlka hana öðruvísi en svo að ÍSÍ (og öðrum íþrótta­bandalögum og félögum) finnist ekkert ámælis­vert við þessa aðför að réttindum trans fólks. Í það minnsta sjá þau ekki ástæðu til að gefa út yfir­lýsingu líkt og þau hafa gert um mörg önnur samfélagsleg málefni.“

Þau félög sem standa að yfir­lýsingunni segjast í henni ekki geta sæst á að málið „drukkni í þrúgandi þögn og aðgerða­leysi.“

Kröfur félaganna eru eftir­farandi:

  • Að SSÍ dragi atkvæði sitt til baka. Sé slíkt ekki hægt vegna tæknilegra atriða krefjumst við þess að sambandið gefi út opinber­lega yfir­lýsingu þar sem það segist ekki lengur geta staðið með atkvæða­greiðslu sinni og biður trans fólk afsökunar.
  • Að SSÍ lofi að tala fyrir inngildingu og mann­réttindum í komandi umræðum og kosningum annarra nefnda (svo sem Ólympíu­nefnd­anna, Evrópu­samtaka og á norrænum vettvangi), í stað þess að standa fyrir mismunun og útskúfun.
  • Að Íþrótta­samband Íslands fordæmi afstöðu SSÍ og taki opinber­lega afstöðu með réttindum trans fólks, þar með talið trans kvenna sem keppa í íþróttum á afreks­stigi.

„Því blásum við til kröfu­fundar þann 6. júlí klukkan 18 fyrir utan skrif­stofur ÍSÍ og SSÍ að Engjavegi 6 og biðjum öll þau sem er annt um jafnrétti og mann­réttindamál að koma og standa með okkur. Við hvetjum öll sem geta til að mæta í íþrótta­fötum til að sýna samstöðu,“ segir á vef Kven­réttinda­félags Íslands.

Þau fimmtán samtök sem standa að yfir­lýsingunni og kröfu­fundinum í dag eru:

Argafas, In­ter­sex Ísland, Femín­ista­fé­lag Há­skóla Íslands, Hinseg­in Vest­ur­land, Hinseg­in Aust­ur­land, Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands, Q – fé­lag hinseg­in stúd­enta, Tabú – Femín­ísk Fötl­un­ar­hreyf­ing, Trans Ísland, Rauða Regn­hlíf­in, Sam­tök­in 78, Slag­tog – Femín­ísk sjálfs­vörn, Stelp­ur Rokka, Styrm­ir Íþrótta­fé­lag, Öfgar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá