Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Brynjar veit loks hvað veldur bregðukvillanum: „Mér myndi batna ef ég hlustaði meira á Soffíu“

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson segist vera búinn að finna orsök þess að honum bregði við öllu óvæntu og hvellnu, eins og frægt er orðið.

Hinn umdeildi en grínaktugi aðstoða­maður dómsmála­ráðherra skrifaði spaugsama færslu á Facebook í dag þar sem hann segist hafa fundið ástæðuna fyrir því að honum bregði svona illilega við öllu óvæntu og hvellnu. Segir hann kvillann hafa aukist jafnt og þétt og nú sé Soffía eiginkona hans hætt að vilja sjást með honum opinber­lega. En hver er orsökin fyrir kvillanum? „Ástæðan er sú að ég er svo hamfara­sinnaður og neikvæður, sem veldur streitu og tauga­veiklun og brýst út með skjálfta við minnsta áreiti.“

Segir hann lækninn hans hafa um tvennt að velja, annað hvort að hlusta meira á Soffíu og hætta að vinna fyrir dómsmála­ráðherrann, eða að taka kröftugt róaandi lyf sem gæti þó minnkað kynorkuna. „Ég spurði nú hvort það væru engin takmörk fyrir því hvað sumt geti minnkað.“

Færsluna má lesa hér að neðan:

„Vísinda-og fræðimenn hafa lagt mikið á sig til að finna orsök þess að mér bregður svona við öllu óvæntu og hvers kyns hljóðum. Þessi kvilli hefur aukist jafnt og þétt að nú er svo komið að Soffía treystir sér ekki til að láta sjá sig með mér á almanna­færi. Nú hafa fræðimenn komið með greiningu, sem er sú sama og Soffía taldi líklegust.

Ástæðan er sú að ég er svo hamfara­sinnaður og neikvæður, sem veldur streitu og tauga­veiklun og brýst út með skjálfta við minnsta áreiti. Læknirinn reyndi að sannfæra mig að jörðin væri ekki bráðna vegna hlýnunar af manna­völdum og það væru ekki allir fífl og asnar sem væru mér ekki sammála. Mér myndi batna ef ég hlustaði meira á Soffíu og ef ég hætti að vinna fyrir þennan dómsmála­ráðherra myndi það að öllum líkindum flýta verulega fyrir bata.

Ef mér hugnaðist þetta ekki þá væru til öflug róandi lyf en þeim fylgdi ýmsar aukaverkanir eins og minni kynorka. Ég spurði nú hvort það væru engin takmörk fyrir því hvað sumt geti minnkað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt