Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Átakanleg lífsreynslusaga: „Hann hafði borgað fyrir að fá að nauðga mér“

Súludansari – Mynd úr myndabanka
Súlu­dans­ari – Mynd úr mynda­banka

„Ég var 18 ára gömul þegar ég sóttist eftir vinnu sem var í huga mínum mjög spennandi og eftirsóknar­verð. Ég hafði farið á nektar­stað og upplifað konurnar sem unnu þar sem sterkar og ósigrandi og vildi verða eins og þær. Ég kem af brotnu heimili og var þolandi kynferðis­ofbeldis og eineltis þannig að það var kannski ekkert skrítið þótt ég hrifist af þessum ótrúlega flottu konum sem voru klæddar eins og drottningar, með blásið hár og seiðandi augnaráð. Ég hafði aldrei séð svona konur áður og í mínum huga virtust þær ósigrandi.

Þær gengu milli borðanna á staðnum og mennirnir slógust um að tala við þær, þeir ýttu að þeim kampavíni og peningum og það eina sem þær gerðu var að tala við þá og þær virtust njóta þess. Svo stigu þær á svið og dönsuðu kynþokka­fullt, sveif­landi hárinu og katt­liðugar gerðu þær hinar fallegustu æfingar á járnsúlu. Ég hafði bara aldrei séð neitt þessu líkt og þar með var það ákveðið! Ég skyldi sækja um vinnu og verða nákvæmlega eins og þessar gyðjur. Ég sótti um og fékk vinnuna. Grét eftir fyrsta skiptið.

Dagur eitt: ég steig á svið, fór úr fötunum – tónlistin í botni– graðir karlar á kollum við sviðið, fyrsti 500-kallinn kom fljúgandi en ég var jafn nakin á sviðinu þrátt fyrir hann. Svo kom næsti og næsti og næsti. Lagið kláraðist, ég tók upppeningana – fór niður í búnings-herbergi nakin og brast í grát. Þetta var alls ekki eins glamúrös og ég taldi, en það versta var búið, áleit ég, næsta skipti yrði ekki eins ömurlegt – og það stóðst. Ég varð góð í þessu, svo góð að ég var beðin um endur­greiðslu í eitt skiptið eftir að einn karlinn hafði eytt of miklu í mig og átti ekki fyrir jóla­gjöfum handa börnunum sínum. Það kom mér ekki við og hann hélt heim á leið með hnút í maganum en ég var með hnút á veskinu svo seðlarnir myndi ekki fjúka úr því.

Ég varð einskonar seleb þarna inni og fékk til mín fasta­kúnna sem elskuðu að sjá mig dansa fyrir sig, bæði á sviði sem og í einka­herberginu, sumir vildu að ég baðaði mig í sturtu­klefanum sem var í einu herberginu – aðrir vildu að ég dansaði á þeim og nuddaði mér fram og aftur, upp og niður, aðrir voru með eitthvað skrýtið kínk fyrir mat og svo mætti lengi telja. Þarna upplifði ég í fyrsta sinn frelsi og að ég væri að slá eign minni á eigin líkama eftir áralangt ofbeldi þar sem ég átti ekki líkama minn. Ég upplifði að ég réði hvað ég gerði og hvernig, og elskaði að upplifa að karl­maðurinn væri undir mér og hann væri valdalaus í mínu rými. Þarna inni á staðnum myndaðist sterkur vinahópur þar sem dj-inn, dyra­verðirnir og dans­ararnir héngu saman og þetta varð hálfgerð paradís fyrir litlu brotnu mig – þarna var ég örugg, eða hvað?

Hlustaði ekki á innsæið. Ég var send til að dansa í einka­samkvæmi sem var ekki svo óalgengt og það var góður peningur í því svo við gerðum það með glöðu geði, en andrúms­loftið var einhvern veginn öðruvísi þegar þetta var bókað á mig, ég fann það í beinunum að það var eitthvað skrýtið. Ég ákvað að hlusta ekki á innsæið heldur fór ég ásamt einum af dyra­vörðunum, á ónefndan veitinga­stað í borginni. Þar beið hann, karl­helvítið. Hann hafði borgað fyrir að fá að nauðga mér.“ Lestu átakanlega lífreynslusögu í heild sinni í helgar­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning