Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Hanna Rún keppti með sprungur í fætinum: „Í raun verra heldur en beinbrot“

Hanna Rún
Hanna Rún Mynd: Kazuma Takigawa – Myndin hefur verið stífð.

Hún hefur sigrað hverja dans­keppnina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum
lífið með dans­félaga sínum og eigin­manni. Hanna Rún Bazev Óladóttir talar um
æskuna, dansinn, eineltið og kjafta­sögurnar sem tengjast oft afbrýðisemi, ástina,
tímabundu lömunina í öðrum fætinum, gigtina og Rússland.

Hún ólst upp í Danmörku til tveggja ára aldurs; landi meistara ljóta andar­ungans, litlu hafmeyjunnar, prins­essunnar á bauninni og litlu stúlkunnar með eldspýturnar. Og jú, líka landi Hans klaufa. Stúlkan bjó síðar í Kópavogi og enn síðar Garðabæ.

Hver er fyrsta minning þín? „Ætli það sé ekki þegar ég týndist. Ég hef kannski verið þriggja til fjögurra ára. Ég ætlaði að sýna vinkonu minni nýja húsið sem mamma og pabbi voru að byggja í Kópavogi. Nýja húsið var ekkert langt frá þar sem við bjuggum en við fórum aðeins of langt og týndumst. Það var komið myrkur og eftir mikla göngu sá ég hóp af fólki, þar var mamma vinkonu minnar hágrátandi, og einnig lögreglu­bíll. Ég man vel eftir því. Ég var mikill prakkari og foreldrar mínir töluðu um hvernig ég yrði eiginlega þegar ég yrði unglingur. Svo snerist þetta við og ég varð algjör engill. Ég týndist oft og mikið var leitað að mér. Ég var alltaf að gera eitthvað sem ég mátti ekki.

Maðurinn minn var eins; mamma hans sagði mér það. En sagt er að þegar tveir mínusar mætist komi plús. Börnin okkar eru ótrúlega róleg og góð.“ Svo liðu árin og stúlkan sem týndist átti sína drauma. „Það var bara tvennt: Dansari og gull­smiður. Ég var alveg ákveðin í því að ég ætlaði að verða gull­smiður; ég hef reyndar ekkert lokað á það og held því alveg opnu. Ég ætlaði sem sagt að verða gull­smiður eins og pabbi. Ég ætlaði mér líka að verða best í dansi og verða heims­meistari; ég get ekki hætt fyrr en ég næ því,“ segir Hanna Rún sem vinnur hálfan daginn hjá Gullsmiðju Óla, fjölskyldu­fyrirtækinu. Eftir hádegi æfir hún síðan dans með eigin­manninum. Hana dreymir enn um að verða heims­meistari. Íslands­meistara­titlarnir eru orðnir um 30 og svo eru það hinir og þessir titlar fyrir utan þá en hún hefur sigrað mörg önnur mót hérlendis og erlendis.

Sprungur

Hanna Rún Bazev Óladóttir var fjögurra ára þegar hún fór í dansskóla. „Mamma og pabbi fóru með mig í Dansskóla Sigurðar Hákonar­sonar. Þegar ég hafði stigið þar inn varð ekki aftur snúið. Ég man vel eftir þessu. Ég byrjaði að dansa við frænda minn og þjálf­ararnir töluðu fljótlega um við mömmu og pabba að það væri auka­taktur í mér þrátt fyrir hvað ég væri lítil; hvað ég væri snögg að ná sporunum og væri taktviss. Ég var mjög ung þegar ég fór að fara í einkatíma. Svo flutti frændi minn út á land og ég varð herralaus en þá var ég svo heppin að það var laus strákur sem var mjög efnilegur. Við vorum pöruð strax saman og kepptum síðan á okkar fyrsta móti árið 1997 þegar ég var að verða sjö ára og urðum Íslands­meistarar. Og við unnum svo nánast allar keppnir eftir það.“

Dans­félagarnir voru snemma settir upp í næsta flokk þannig að þau æfðu með eldri krökkum. „Þetta voru allt unglingar þannig að maður var alltaf að „keppa“ við þessa eldri krakka á æfingum sem var ótrúlega gott fyrir okkur. Við byrjuðum strax mjög ung að vera í einka­tímum hjá erlendum þjálfurum, en á þessum tíma voru okkar aðal­þjálfarar frá Þýska­landi. Þeir skiptust nokkrir á að koma, ballroom- og latínþjálfarar. Þegar þeir komu tókum við alltaf 10-12 einkatíma frá föstudegi til sunnudags. Eitt árið þegar við vorum búin að plana afmælis­boðið mitt man ég að það stangaðist akkúrat á við þegar einn þjálf­arinn kom, þannig að ég varð að fara úr veislunni minni. Krakkarnir horfðu bara á spólu á meðan ég skrapp í einka­tímann og svo kom ég aftur í afmælið strax á eftir. Ég skildi þetta mjög vel þótt ég hefði alveg viljað sleppa þessum tíma bara einu sinni en ég vildi líka verða best og vissi að þessir þjálfarar komu til landsins til þess að hjálpa okkur að verða betri.“

Hún mátti ekki fara í skíða­ferðalög þar sem hún gæti dottið og meitt sig. „Það þurfti bara að pakka mér í bómull, sérstak­lega rétt fyrir keppnir. Ég man að þegar það var mikill snjór mátti ég ekki fara út í frímínútur; kennararnir voru hræddir um að ég gæti runnið eða fengið snjóbolta í andlitið. Þannig að á veturna í mikilli hálku og snjó var ég inni í frímínútum. Það var bara skipun frá þjálf­aranum. Ég mátti þá alltaf velja eina stelpu til að vera líka inni með mér; það var voða gaman því þá var ég alltaf svo vinsæl.“

„Ég keppti með sprungurnar í fætinum.“

Hún dansaði og dansaði. Hún dansaði svo mikið að það komu sprungur í bein í öðrum fætinum þegar hún var 15 ára. „Þetta var álag. Ég var búin að dansa svo mikið, ég hljóp líka mikið úti og annar sköflungurinn var morandi í sprungum sem voru komnar einn þriðja inn í beinið. Læknirinn talaði um að þetta væri í raun verra heldur en beinbrot.“ Hönnu Rún var sagt að hún mætti ekki dansa í þrjá mánuði því annars gæti hún kvatt dansinn. Hún sagðist vera á leiðinni á heims­meistaramót og að hún ætlaði að fara. Og það gerði hún. „Ég keppti með sprungurnar í fætinum og fékk 40 stiga hita og var ælandi, mögulega álag út af öllu saman, en mér gekk samt vel. Ég varð að fara á mótið því annars hefði ég ekki verið sátt. Ég tók svo rúman mánuð í pásu eftir mótið.“

Viðtalið við Hönnu Rún má lesa í heild sinni í vefútgáfu nýjasta tímarits Mannlífar, hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning