Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Spindrift Theatre 10 ára og á leið á Edinburgh Fringe

Spindrift Theatre fagnar 10 ára afmæli um þessar mundir.
Spindrift Theatre fagnar 10 ára afmæli um þessar mundir. Mynd: Aðsend

Sviðslistahópinum Spindrift hefur hlotnast sá heiður að vera boðið að flytja verk sitt Them á Edinburgh Fringe- hátíðina í ágúst en hópurinn fagnar 10 ára afmæli um þessar mundir.

Sviðslista­hópurinn Spindrift kom saman þegar fjórir stofn­endur hópsins, Anna Korolainen Crevier, Bergdís Júlía Jóhanns­dóttir, Henriette Kristensen og Sólveig Eva Magnúsdóttir, voru við leiklistarnám í Rose Bruford College í London og mynduðu hóp til að æfa námsefni aukalega eftir skóla. Með áfram­haldandi starfsemi hópsins eftir útskrift bættust við leik­konurnar Tinna Þorvalds Önnu­dóttir, Marjo Elina Lahti og Outi Ikonen.

Bergdís Júlía Jóhanns­dóttir, Tinna Þorvalds Önnu­dóttir og Sólveig Eva Magn­ús­dóttir eru hluti af Spindrift Theatre – sviðs­lista­hópi sjö kvenna frá Norð­ur­lönd­unum. Hópurinn fagnar 10 ára afmæli um þessar mundir og hann er á leið­inni á Edin­borgar Fringe leik­list­ar­há­tíð­ina með verð­launa­sýn­ing­una THEM í ágúst.

Fyrsta verk leik­hópsins var Þríleikur og samanstóð af þremur útskriftar­verkum flytjenda. Sýningin var sett upp í Frysti­klefanum í Rifi og Gaflara­leikhúsið árið 2013. Þar á eftir kom Carroll: Berserkur, sem byggt var á Lísu í Undra­landi eftir Lewis Caroll. Það var sýnt sem verk í vinnslu í Drayton Arms Theatre í London árið 2014, og svo sem immersive leikhús­sýning í Tjarnar­bíói í Reykjavík árið 2015. Þar fengu áhorf­endur að upplifa það að vera Lísa og ráfa um Undraland sem náði til allra króka og kima leik­hússins og þar sem þeir hittu fyrir hina undarlegustu íbúa landsins.

Næsta verk tók nokkurn tíma í undir­búningi og hefur verið sýnt á ýmsum stigum vinnunnar sem verk í vinnslu og á hverju stigi hefur hópurinn lært eitthvað nýtt. En verkið THEM er byggt á viðtölum sem meðlimir hópsins tóku við tugi karla á Norður­löndunum á öllum aldri um upplifun þeirra af karl­mennsku. Samtölin fóru um víðan völl og köfuðu djúpt. Þau vöktu með viðmælendum vanga­veltur um sína eigin tilveru sem karlar í karllægu samfélagi og hópurinn fór að taka eftir ákveðnum þemum sem endurtóku sig og vann svo sýninguna út frá þeim.

Einnig hefur hópurinn sett upp verkið Við dönsum undir öskufalli enda­lokanna eftir Melissa-Kelly Franklin við Dixon Place í New York og á Reykjavík Fringe Festival árin 2020 á ensku og 2022 á íslensku, tónleika­útgáfu af óperunni Ástin ein tauga­hrúga, enginn dans við Ufsaklett sem Anna Halldórs­dóttir samdi við samnefnda ljóðabók Elísabetar Jökuls­dóttur og sem sett var upp í Mengi á Myrkum músík­dögum fyrr á þessu ári, auk þess sem í Finnland hefur sýning byggð á bók Maria Pettersson, Historian jännät naiset – eða Extraordinary women of history – gengið frá því í febrúar. 

Um þessar mundir undirbýr hópurinn ferð á Edinborgar Fringe hátíðina þar sem hann mun sýna verkið THEM hvorki meira né minna en 23 sinnum á einum mánuði. 

Sýningin hefur nú þegar ferðast til London og unnið til verðlauna á hátíðum í Reykjavík og í Gautaborg. 

Verkið var sýnt í Tjarnar­bíói á liðnu leikári og hlaut fyrir vikið Grímu­tilnefningu fyrir bestu sviðs­hreyfingar ársins, en hreyfi­hönnuður var Unnur Elísabet Gunnars­dóttir, sem einnig leik­stýrði sýningunni. 

Einnig er hópurinn nú að undirbúa nýja samsetta leik­sýningu um hetju­dáðir kvenna í þjóðsögum, mannkyns­sögunni og hversdags­leikanum, auk þess sem hann undirbýr verkefni fyrir næsta ár í samstarfi við RÚV og Útvarps­leikhúsið. 

Spindrift vinnur verk sín yfirleitt með rannsóknar­vinnu og oft í gegnum samsköpun. Útgangs­punktur verkanna er sjálfs­mynd einstaklingsins í breyttri heimsmynd og ljóðrænn frásagnar­máti og kvenlægt sjónar­horn er einkennandi.

Leik­hópurinn hefur haldið vinnu­stofur sem einblína á sjálf leikarans sem nálgun fyrir leiktækni og sköpun. Sem kven­leikhópur leitast Spindrift við að uppgötva leiðir að femínískri leik­þjálfun og leiktækni án hefð­bundinnar hírarkíu/valda­pýramída. 

Hópurinn er ekki bara hópur sem býr til listaverk saman heldur einnig hópur sem snýst um að styðja og næra meðlimina og gefa hverri annarri innblástur og high five í lífsins ólgusjó. 

Meðlimir hópsins eru búsettir víða um heim en það stoppar þá ekki í því að fagna því afmælis­gleði verður haldin í galakjól með kampavín yfir hafið með hjálp internetsins.

Heimasíða Spindrift Theatre  

Instagram Spindrift Theatre

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt