Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Alvarleg staða í stærðfræðikennslu á Íslandi

Kerfis­vandi frekar en bóka­skortur

Stærðfræði
Stærð­fræði verður skil­greind sem for­gangs­verk­efni stjórn­valda til næstu þriggja ára Mynd: Unsplash/Vitaly Gariev

Ný greining mennta- og barnamála­ráðuneytisins sýnir alvarlega stöðu í stærðfræði­kennslu á Íslandi. Gamalt kjarna­efni, skortur á samfellu á milli skóla­stiga og mikið álag á kennara kalla á heild­stæðar kerfis­breytingar. Stærð­fræði verður skilgreind sem forgangs­verkefni stjórn­valda til næstu þriggja ára samkvæmt mennta- og barnamála­ráðuneytinu.

Helstu niðurstöður greiningarinnar:

  • Kennarar búa til sitt eigið efni: Um 76% grunn­skóla­kennara þurfa oft viðbótar­efni og 84% nota eigin verkefni reglulega þar sem eldra kjarna­efni dugir ekki til.
  • Veik staða nýnema í framhalds­skólum: Enginn framhalds­skóla­kennari metur stöðu nýnema sem „mjög góða“ og 62% telja hana frekar eða mjög veika.
  • Skortur á samstarfi: Aðeins 10% framhalds­skóla­kennara segja samskipti og samfellu við grunn­skóla vera markvissa.
  • Ábyrgðin hvílir á kennurum: Greiningin sýnir að kennarar halda kerfinu að verulegu leyti gangandi með eigin undir­búningi og aðlögun á námsefni.

Kerfisvandi frekar en bókaskortur

Upphafleg spurning ráðuneytisins um gæði námsbóka hefur þróast yfir í stærri spurningu um mennta­kerfið allt. Niður­staðan sýnir að ekki dugi að kaupa nýjar bækur. Aðal­námskrá, námsmat, námsefni og starfs­þróun kennara þurfa að vinna saman sem ein heild. Horft verður til þessara þátta í næstu aðgerða­áætlun mennta­stefnu fyrir árin 2027–2030.

Lagt til að stærðfræði verði forgangsverkefni

Í greiningunni er lagt til að nýtt kjarna­efni verði valið samkvæmt faglegum gæða­viðmiðum og að innleiðing hefjist á miðstigi grunn­skóla. Innleiðingin verður hönnuð með 1. til 10. bekk í huga. Samhliða þarf að tryggja fjármagn í starfs­þróun kennara, stöðumat og betri brú á milli skóla­stiga. Ný stöðu- og framvindu­próf Mats­ferils, sem lögð voru fyrir í vor, munu veita mikilvæg gögn um náms­framvindu á landsvísu. Ráðuneytið áréttar þó að mælingar einar og sér dugi ekki, þær þurfi að nýta til mark­vissra umbóta þar sem þörfin er mest.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Hvetur fólk til að eiga reiðufé.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto