Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Haraldur vill þrepaskipt leikskólakerfi: „Það eru engar töfra- eða skyndilausnir til“

Haraldur Freyr Gíslason, forðmaður Félags leikskólakennara. Samsett mynd.
Haraldur Freyr Gíslason, forð­maður Félags leik­skóla­kenn­ara. Samsett mynd.

Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leik­skóla­kennara, segir í aðsendri grein á Vísi að;

„þeirri spurningu sé yfirleitt ósvarað hvernig farsæld mjög ungra barna sé best tryggð í þeirri brúar­smíði milli fæðingar­orlofs og leikskóla sem samfélagið og stjórn­málamenn eru ákaflega áhuga­samir um.

Í hversu margar klukku­stundir á dag er gott fyrir eins árs gömul börn að dvelja í leikskóla? Er það endilega betri fjár­festing fyrir samfélagið að auka dvalar­tíma ungra barna í leik­skólum en að lengja fæðingar­orlof upp í tvö ár? Hvernig væri til dæmis að brúa bilið milli fæðingar­orlofs og leikskóla með þrepa­skiptu leik­skólastarfi þar sem dvalar­tími barna lengist í áföngum eftir því sem þau eldast? Um slíkar hugmyndir er sáralítið rætt og hlýtur það að vekja furðu í ljósi þess hve mikill áhugi er á leik­skólamálum, sérstak­lega rétt fyrir kosningar. Það skyldi þó ekki vera að umræða brúarsmið­anna um þessi mál snúist í of miklum mæli um annað en hagsmuni barna?“

Telur að taka inn yngri börn dragi úr gæðum starfsins

Eins og kunnugt er og Haraldur benti á, þá voru leik­skólamál eitt af aðal­kosninga­málum síðastliðið vor. Haraldur útskýrir að þar hafi komið fram að flestir flokkar ætluðu sér að brúa bilið milli leikskóla og fæðingar­orlofs.

„Fáir höfðu raun­verulegar hugmyndir um það hvernig fara mætti að því og enn færri lögðu fram tillögur sem myndu ráðast að rót vandans, sem er að fjölga leik­skóla­kennurum. Ef sá vandi er ekki leystur munu allar tilraunir til að stækka leik­skólakerfið, til dæmis með því að taka inn yngri börn, draga úr gæðum leik­skólastarfs og hafa alvarleg áhrif á starfs­umhverfi leik­skóla­kennara.“

Kerfið þarfnast 1500 fleiri leikskólakennara

Haraldur vill helst sjá að ríki og sveitar­félög stefni að því að fjölga leik­skóla­kennurum um 1500.

„Íslendingar eru stoltir af leik­skólunum sínum. Löggjöfin um leik­skólastarf er merkileg og rammar inn mann­réttindi barna með hætti sem er öfundsverður. Víða um heim er horft til Íslands sem fyrirmynd í þessum efnum bæði er varðar stefnu­mörkun og löggjöf.

Eins og á mörgum sviðum öðrum hefur framkvæmd stefnunnar ekki endilega verið okkur til sama sóma og stefnu­mörkunin sjálf. Þannig eiga tveir þriðju hlutar starfs­fólks, sem sinnir menntun og uppeldi leik­skólabarna, að vera leik­skóla­kennarar (um þetta má lesa í lögum um menntun, hæfni og ráðningu kennara nr. 95/2019). Árið 1998 störfuðu 926 leik­skóla­kennarar á Íslandi og voru þeir þá 29% af starfs­mönnum leikskóla. Síðan þá hefur verið gert stórátak í að fjölga leik­skóla­kennurum sem leiddi af sér að árið 2019 störfuðu 1.585 leik­skóla­kennarar hérlendis.

Í tvo áratugi hefur því ekki aðeins tekist að tryggja nýliðun í leikskóla­kennara­stéttinni heldur hefur stéttin vaxið hraðar en flestar aðrar stéttir. Það segir þó ekki alla söguna því árið 2019 höfðu íslenskir leik­skólar fjarlægst hina lagalegu kröfu um lágmarks­hlutfall leik­skóla­kennara í stað þess að nálgast hana. Hlut­fallið var þá 28% í leik­skólum sem reknir eru af sveitar­félögum og aðeins 19% í einka­reknum leik­skólum. Það er okkur ekki til sóma.

Vöxtur leik­skóla­stigsins hefur verið langt umfram efni og gæði.

Of hraður vöxtur leik­skóla­stigsins er megin­orsök þess að ekki hefur tekist að fjölga leik­skóla­kennurum hlutfalls­lega síðustu áratugi.

Það er ábyrgðar­hlutur að láta grunn­kerfi samfélags vaxa umfram efni og gæði. Sú ábyrgð liggur á herðum allra sveitar­félaga landsins. Það verður að finna jafnvægi á milli fjölgunar leik­skólabarna og –kennara. Það eru engar töfra- eða skyndi­lausnir til.“

Markmiðið að bjóða upp á gæðamenntun í leikskólum

Að lokum nefnir Haraldur að það séu þó jákvæð teikn á lofti.

„Það eru mjög jákvæð teikn á lofti varðandi fjölgun leik­skóla­kennara. Samkvæmt tölum frá HÍ hefur verið umtals­verð fjölgun í leik­skóla­kennara­náminu undan­farin ár og mjög stór hópur útskrifaðist nú í vor. Slíkur árangur næst ekki í tómarúmi heldur er afrakstur mark­vissrar vinnu og margra samhangandi þátta. Sem dæmi hafa samnings­aðilar unnið markvisst að því að bæta laun og starfs­aðstæður. Styrkir til náms hafa verið efldir sem og tækifæri til að stunda nám meðfram starfi og fleira. Það eru síðan stór verkefni framundan í vinnu við betri vinnutíma í leik­skólum sem og jöfnun launa á milli markaða. Öll þessi skref miðast að því að fjölga leik­skóla­kennurum sem er forsenda fyrir því að geta boðið börnum upp á gæða­menntun í leik­skólum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið