Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Jákvæður Jón Viðar: „Miklu fjölhæfari og stórbrotnari leikari en Spaugstofukarakterarnir hans sýna“

Sigurður Sigurjónsson.
Sigurður Sig­ur­jóns­son.

Gagn­rýnandi Íslands, Jón Viðar Jónsson færir í tal á Facebook-síðu sinni að hann hafi ekki verið nægilega ánægður með „fyrsta þáttinn í fjögurra þátta syrpu ríkis­sjón­varpsins um Sigga Sigurjóns í gærkveldi. Og varð fyrir vonbrigðum; vinnslan á efninu tætingsleg og lopinn alltof teygður. Stutt viðtals­brot við fjölda fólks sem sögðu nánast öll hið sama og það sem allir vita, sem til mannsins þekkja: að hann er drengur góður, ljúfmenni hið mesta, hógvær og yfirlætis­laus og – það sem ekki varðar minnstu – hefur aldrei miklast af frama sínum. Og aldrei hætt að þroskast.“

Jón Viðar Jónsson.

Vonast Jón Viðar til þess að meira kjöt verði á beinunum í þeim þremur þáttum sem eftir eru um einn dáðasta leikara Íslands­sögunnar – Hafnfirðinginn Sigurð Sigurjónsson:

„Í þessum fyrsta þætti voru hins vegar alltof fá sýnishorn af list Sigurðar. Þau verða eflaust fleiri í næstu þáttum. Og væntanlega eiga þau einnig eftir að staðfesta það sem við vitum líka, við sem höfum fylgst með honum allar götur frá því hann spratt fram í Nemenda­leikhúsinu í Lindarbæ fyrir meira en fjörutíu árum, sprúðlandi af fjöri æskunnar: að hann er svo miklu fjöl­hæfari – og stórbrotnari – leikari en Spaug­stofu­karakterarnir hans sýna. Þeir hefðu getað eyðilagt minni listamann en hann er. Það hafa þeir ekki gert, þó að þeir hafi vissulega – það verður að segjast – skyggt um of á það hversu fjölhæfur hann er.“

Og Jón Viðar er aldeilis ekki spar á hrósið þegar kemur að Sigga Sigurjóns:

„Það kom til dæmis ýmsum á óvart – heyrði maður – hversu magnaðri persónu­lýsingu hann skilaði í Hrútum Gríms Hákonar­sonar. Og þá var Afinn litlu síðri; þar gat hann nýtt sér allt í senn: fágað og hlýlegt skopskynið ásamt því tilfinninga­lega innsæi og þeirri mann­þekkingu sem hann býr nú orðið yfir. Og ég stenst ekki mátið að nefna Kaup­félags­stjórann í Héraðinu, hversu kunnug­legur hann var, sá útsmogni pólitíski bragða­refur. Leikara, sem spannar slíkt svið; honum eru bókstaf­lega allir vegir færir.“

Siggi sem Ragnar Reykás.

Þrátt fyrir dapran fyrsta þátt, að mati Jóns Viðar, ætlar kappinn að klára þessa fjögurra þátta seríu um Sigga og hans flottu áhrif sem hann hefur haftá­íslenskt leikhúslíf ogíslenska kvik­myndagerð síðustu fjörutíu árin og rúmlega það:

„Auðvitað horfir maður á næstu þætti. Byrjunin lofaði ekki nógu góðu. En við skulum sjá til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning