Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Jónas kemur út úr skápnum: „Ég get laðast að fleiri en einni manneskju“

„Það er Pride, er þá ekki viðeigandi að koma útúr skápnum? – Eða a.m.k. einum þeirra. Ég er fjölkær (e. polyamourous). Hvað þýðir það og hvaða máli skiptir það? Jú, ég get haft tilfinningar fyrir eða laðast að fleiri en einni manneskju í einu. Kemur þetta einhverjum við? Í rauninni ekki, ekki nema sjálfum mér og þeim sem að kjósa að vera í sambandi með mér eða eiga einhverskonar tengingu með mér.“

Þetta skrifar Jónas Tryggvi Stef­ánsson á Facebook og hefur hann gefið Mannlífi góðfúslegt leyfi til að endur­birta orð hans. Í dag er gleði­gangan gengin og því vel við hæfi að minna á að í dag fagna fleiri en hommar, lesbíur og transfólk. Jónas lýsir hvað felst í því að vera fjölkær.

„Það að ég sé fjölkær þarf ekki endilega að þýða að ég sækist eftir fjölkærum samböndum, en ef ég kýs að gera það þá er það mitt val sem að kemur í sjálfu sér engum öðrum við nema mér og þeim sem ég er í sambandi með. Þetta þýðir ekki heldur að þeir einstaklingar sem að ég mun koma til með að vera í samböndum með í fram­tíðinni þurfi endilega að vera fjölkærir,“ segir Jónas.

Hann segir tvær ástæður fyrir því að hann segir frá þessu. „Í fyrsta lagi held ég að þetta sé miklu algengara en við þorum að viðurkenna og mér finnst mikilvægt að normalæsera það. Þetta er ekki það flókið. Hefur þú aldrei verið hrifin(nn) af tveimur einstaklingum á sama tíma? Hefur þú aldrei orðið hrifinn af nýjum aðila á sama tíma og þú varst hrifin(nn) af fyrr­verandi maka? Well, þá ertu líklega fjölkær – en maður þarf ekki endilega að iðka fjölkær sambönd þó að maður sé fjölkær, en það má og það gæti skipt máli,“ segir Jónas.

Enn fremur segist Jónas vona að hann geti með þessu veitt öðrum þor til að vera það sjálft. „Í öðru lagi þá lýt ég á það sem sigur ef að mitt skref getur gefið einni annarri manneskju þor eða leyfi til þess að lifa eftir sínum gildum og eftir því hver viðkomandi er í raun og veru. Mundu samt, þú þarft ekki leyfi frá neinum nema sjálfum þér til þess. Það er vont að vera hafnað fyrir það hver maður er, en það er verra að vera samþykkt(ur) fyrir eitthvað sem maður er ekki,“ segir Jónas.

Hann segist nýlega hafa uppgötvað þetta. „Hvernig komst ég að þessu? Jú. Fyrr á árinu kynntist ég yndislegri konu sem að ég fór í samband með og ég byrjaði að vera mjög hrifinn af henni. Á sama tíma fann ég að ég var ennþá ástfanginn af fyrr­verandi. Ég veit ekki með ykkur, en mér finnst þetta bara fallegt. Þetta þarf ekki að vera flóknara en þetta. Því miður gekk það samband ekki upp heldur á þeim tíma útaf öðrum atriðum, en ég ber hlýjan hug til viðkomandi og ég þakka fyrir þessa uppgötvun mína.“

Hann óskar svo öllum lands­mönnum til hamingju með daginn. „Hversu fallegt er það að hafa næga ást að gefa og að þurfa ekki að bíða eftir því að fyrri ást deyji, áður en maður getur byrjað að rækta nýja? Ég óska ykkur öllum til hamingju með daginn og hvet ykkur til þess að vera eins og þið eruð og að leyfa þeim sem að eru öðruvísi en þið að vera eins og þau eru, jafnvel þó að þið skiljið það ekki. Ég skil ykkur ekki öll heldur og leyfi ykkur að vera eins og þið eruð,“ segir Jónas.

Að lokum deilir hann ljóði vinkonu sinnar. „Mig langar að enda þetta með því að láta hér með fylgja fáránlega fallegt ljóð eftir vinkonu mína, Þórhildur Magnúsdóttir, sem heldur úti upplýsinga­fræðslu­síðunni Sundurogsaman á Instagram, sem ég hvet ykkur til þess að skoða – en þar hjálpar hún fólki að lifa lífi sínu eftir sínum gildum og að vera í samböndum sem að þjóna þeim, en ekki öfugt. Takk fyrir að leyfa mér að deila:

„Líf gef mér æðruleysi

til að sætta mig við mig eins og ég er,

kjark til að vera eins og ég vil,

en ekki eins og samfélagið ætlast til að ég sé

og visku til að greina þar á milli.

Að lifa einn dag í einu,

njóta hvers andartaks fyrir sig,

viðurkenna mótlæti sem fáfræði og fordóma,

með því að taka tilverunni eins og hún er,

allskonar, skrítin, skemmtileg, tilviljana­kennd, óréttlát, síbreytileg

og treysta því að allt fari á réttan veg

ef ég lifi í ást og hugrekki

svo að ég megi vera hæfilega hamingjusöm í þessu lífi

og algjör­lega fabulous eins og ég er!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið