Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Björn Bjarnason: Aðildarumsóknin er viðvörun fyrir allar nágrannaþjóðir Rússa

Björn Bjarnason
Björn Bjarna­son

„Þegar litið er til stefnu þessara þjóða í öryggis- og varnar­málum frá lokum annarrar heims­styrjaldarinnar er í raun um gífurlega sögulegt skref að ræða þegar þjóðirnar tvær ganga í NATO,“ segir Björn Bjarnason um sýn sína á umsókn Svía og Finna í NATO. „Þótt umræður hafi verið um NATO-aðild í löndunum um nokkurt árabil var litið á hana sem fjarlægan og næsta óhugsandi kost. Síðan varð stefnu­breyting á fáeinum vikum eða kannski frekar sólar­hringum eftir að Pútin sendi rússneska herinn inn í Úkraínu. Það segir í raun mest um hættuna sem ráðamenn Finna og Svía telja stafa frá óútreiknanlegum og stríðs­óðum Pútin. Aðildar­umsóknin er því viðvörun fyrir allar nágranna­þjóðir Rússa og ábending um nauðsyn þess að gera allt til að fæla þá frá árás með traustum vörnum í samvinnu við aðra. Enginn vettvangur er betri til þess en NATO. Með því að draga þannig úr líkum á átökum í Norður-Evrópu hafa Finnar og Svíar aukið öryggi okkar Íslendinga, nú og til frambúðar.“

Heims­myndin er sífellt að breytast og nú færist þetta nær okkur vegna stríðsins í Úkraínu.

Hann svífst á hinn bóg­inn einskis.

„Undir stjórn Pútins hefur Rússlandi ekki vegnað vel og staða hans heima fyrir veikst. Hann svífst á hinn bóginn einskis og hefur aldrei gert til að ná auði og völdum og halda þeim. Þar hafa hernaðar­átök gagnast honum. Hann hélt að svo yrði einnig nú og sér yrði fagnað með blómum í Úkraínu sem stað­festir aðeins firringu hans. Á meðan þetta ástand varir og Rússland lýtur stjórn manns sem þannig kemur fram gagnvart friðsamri nágranna­þjóð, algjör­lega að tilefnis­lausu, er ástæða til að hafa áhyggjur af þróun heimsmála.“

Ríkir hættu­legt ástand á meg­in­landi Evrópu og áhrifa þess verður vart á Norður-Atl­ants­hafi.

Hver er staða Íslands hvað varðar öryggismál?

„Íslendingar verða að taka mið af því sem gerist í kringum þá eins og allir aðrir. Miðað við það sem ég hef sagt hér áður ríkir hættulegt ástand á megin­landi Evrópu og áhrifa þess verður vart á Norður-Atlantshafi.

Það er rangt sem haldið var fram að innrásar Pútins í Úkraínu yrði ekki hernaðar­lega vart hér á Norður-Atlantshafi og ekki þyrfti að huga að öryggis­málum Íslands á nýjan hátt í ljósi hennar. Mikilvægi rússneska Norður­flotans sem sækir út á Atlantshaf frá Kólaskaganum fyrir austan Noreg eykst eftir því sem styrkur landhers Rússa minnkar. Sýnir Pútin vald sitt með þessum flota? Enginn getur svarað þeirri spurningu. Ferðum rússneskra kafbáta í nágrenni Íslands fjölgar. Mikilvægi GIUK-hliðsins eykst.

Til marks um aukna áherslu á varnir og kafbáta­leit á Norður-Atlantshafi má nefna að sunnu­daginn 19. júní birtist á bresku vefsíðunni The Telegraph frásögn um nauðsyn þess að auka enn kafbáta­eftirlit breska flug­hersins og flotans. Utan­ríkismála­nefnd danska þingsins samþykkti 23. júní að senda freigátu sem fylgdar­skip með bandarísku flug­móðurskipi sem verður sent á vettvang til að auka fælingar­mátt á Norður-Atlantshafi. Nágranna­þjóðir sem ráða yfir eigin herafla grípa til ráðstafana. Við þurfum einnig að líta í eigin barm.“

Ferðum vél­anna hefur fjölgað og þeim fylgja her­menn.

Hvað með umsvif bandaríska hersins hér á landi og við landið?

„Hér er um umsvif að ræða með flugvélum frá aðstöðu á Kefla­víkur­flugvelli sem lýtur daglegri umsjá Landhelgis­gæslu Íslands. Hingað koma eftirlits­flugvélar í leit að kafbátum, orrustu­þotur og sprengju­vélar. Ferðum vélanna hefur fjölgað og þeim fylgja hermenn sem dveljast hér tíma­bundið. Þetta er eðlilegt í ljósi þróunar öryggis- og varnar­málanna. Það er spurning hvort ekki eigi einnig að skapa betri hafnar­aðstöðu hér fyrir herskip Bandaríkja­manna og annarra banda­manna okkar.“

Herða landamæraeftirlit

Notkun skotvopna eykst hérlendis. Af hverju stafar þessi staðreynd; þessi ógn og hvað þarf að gera að mati Björns?

„Mesta hættan fyrir almenning af misnotkun skotvopna stafar af þeim sem fara einir út á meðal fólks til að myrða í þeim eina tilgangi að svala eigin geðþótta eða ná sér niðri á samfélaginu, til dæmis vegna öfga­skoðana. Fjöldi vopna segir ekki allt þótt hann skipti vissulega máli. Greining og eftirilit, forvarnar­aðgerðir, skipta mestu til að minnka hættuna á að „einmana úlfar“ láti að sér kveða hér og annars staðar.

Besta úrræðið til að ná tökum á þeirri hættu er að herða landamæra­eft­ir­lit.

Annars konar hætta stafar af vopnum í höndum skipulagðra glæpahópa eða hryðju­verkamanna. Besta úrræðið til að ná tökum á þeirri hættu er að herða landamæra­eftirlit og efla löggæslu almennt svo að hún hafi sem besta sýn yfir þessa glæpa­starfsemi þar sem menn hika ekki við að grípa til vopna í innbyrðis uppgjöri eins og dæmin sanna.“

Varðberg

Varðberg – samtök um vestræna samvinnu og alþjóðamál er félag sem stofnað var á fjölmennum fundi á Hótel Sögu fimmtudaginn 9. desember árið 2010. Með félaginu runnu tvö félög saman í eitt: Samtök um vestræna samvinnu og Varðberg.

Tilgangur Varðbergs er:

  1. Að beita sér fyrir umræðum og kynningu á alþjóða­málum, einkum þeim þáttum þeirra sem snúa að öryggis- og varnar­málum á norður­hveli jarðar.
  2. Að efla skilning á gildi lýðræðislegra stjórnar­hátta.
  3. Að vinna að kynningu á samstarfi og menningu þjóða, sérstak­lega störfum og stefnu Atlantshafs­banda­lagsins.
  4. Að hafa samstarf við hliðstæð félög erlendis, eftir nánari ákvörðun stjórnar samtak­anna.

„Ég var formaður Varðbergs í 10 ár en þá tók Njáll Trausti Friðbertsson alþingis­maður við formennskunni.

Frá árinu 2015 hef ég haldið úti vefsíðunni vardberg.is en þar er að finna gífurlegt magn upplýsinga um þróun öryggis­mála í okkar heims­hluta og einkum á norðurslóðum. Síðan er opin öllum og ætti að vera þeim gagna­banki sem vilja fylgjast með framvindu öryggis­mála frá íslenskum sjónar­hóli við mat á alþjóð­legum fréttum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá