Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ásdís Rán í sjónvarpsþætti um OneCoin-hneykslið: „Ég verð bara að geyma veisluhöldin í nokkra daga“

Afmælis­barn dagsins er ísdrottningin sjálf, Ásdís Rán Gunnars­dóttir, fyrirsæta og athafna­kona. Eru nú liðin 43 ár frá fæðingu hennar.

Ásdís Rán ólst að hluta til upp í Fellabæ á Fljótsdals­héraði en einnig á Höfn í Horna­firði og í Breið­holtinu í Reykjavík. Vakti hún snemma athygli fyrir fegurð og klassa en það var ljós­myndarinn Björn Blöndal sem uppgötvaði hana sem fyrirsætu. Um ævina hefur hún setið fyrir á hinum ýmsum tímaritum, til að mynda Maxim og á forsíðu Playboy í Búlgaríu. Þá stofnaði afmælis­barnið módel­skrif­stofuna model.is og rak nærfata­verslun í Búlgaríu en þar hefur hún verið með annan fótinn síðustu ár. Og ef þetta er ekki nóg, þá lærði Ásdís Rán á þyrlu og hefur leyfi til að fljúga þrjár tegundir þyrla, hvorki meira né minna.

Mannlíf heyrði í Ásdísi í tilefni dagsins og vildi vita hvort og þá hvernig hún hyggðist halda upp á daginn.

„Heyrðu, ég er bara uppi á spítala með syni mínum. Hann er veikur. Svo þarf ég að skutla dóttur minni út á Kefla­víkur­flugvöll á eftir, hún er að fara til Svíþjóðar og sonur minn er á spítala þannig að ég verð bara að geyma veislu­höldin í nokkra daga.“

Mannlíf hefur góðan skilning á því, móður­hlutverkið gengur auðvitað fyrir.

En hvað er á döfinni hjá Ásdísi á næstunni?

„Nú er skólinn að byrja hjá krökkunum en svo verð ég sennilega í Búlgaríu í septemberþ Þar er ég að fara að taka upp einn sjónvarps­þátt. Það mun taka sirka tvær vikur. Þetta er svona international-þáttur um OneCoin-málið þar sem ég spila stóra rullu en þetta snýst um vinkonu mína, hana Ruju. Þau munu senda kvikmyndalið til mín sem mun fylgja mér í nokkra daga.“

Aðspurð hvort hún sé ennþá mikið í Búlgaríu játar Ásdís því. „Já ég er mest þar en svo er bara svo mikil einangrun þar vegna Covid, dóttir mín var búin að vera í tvö ár í online-skóla og ég lét það eftir henni að koma til Íslands svo hún gæti tekið 10. bekk hér. Svo kom stríðið líka og á meðan óvissu­stigið er svona hátt ætlum við bara að vera hér heima.“

Mannlíf óskar Ásdísi Rán innilega til hamingju með afmælið og vonar að sonur hennar braggist fljótt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið