Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Elín Björk er neytandi vikunnar: „Frystiskápar- og kistur eiga það til að verða einskonar svarthol“

Elín Björk Ragnarsdóttir er með mörg ráð fyrir neytendur.
Elín Björk Ragn­ars­dóttir er með mörg ráð fyrir neyt­endur.

Neytandi vikunnar, Elín Björk Ragnars­dóttir er fædd 1973, gift og fimm barna móðir. Svo á hún einnig tvö ömmubörn. Fjöl­skyldan er búsett í Mosfellsbæ. Elín starfar sem farar­stjóri hjá Ferða­félagi Íslands og er björgunar­sveitar­maður í Björgunar­sveitinni Kyndli Mosfellsbæ. Einnig er hún sjálfstætt starfandi ráðgjafi hjá Tupperware.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég kaupi alltaf nautakjöt og kjúkling í magn­pakkningum. Lambakjöt kaupi ég beint af bónda. Ég kaupi einnig oft grænmeti og ávexti sem eru á síðasta séns og frysti eða nota í súpur eða pottrétti. Ég reyni að skipuleggja vikuleg innkaup með því að gera viku­matseðil. Einu sinni í viku erum við með „vinalegan vikudag“ en það er kjötlaus dagur.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Já, ég endurnýti. Við fjár­festum í flokkunar­tunnum í eldhúsið og þá gengur miklu betur fyrir alla fjölskyldu­meðlimi að flokka. Fatnað hef ég selt í Extra­loppunni og húsgögn og annan húsbúnað hef ég annaðhvort sett í nytjagám Sorpu eða auglýst á gefins síðum á Facebook. Það er nefnilega þannig að þegar hluturinn hættir að veita þér gleði er tilvalið að hann fái að veita öðrum gleði.

Gefðu eitt­hvað sem kemur frá hjart­anu

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Það fyrsta sem mér dettur í hug varðandi matvöru er að hún sé innlend. Ef ég þarf að versla innflutta vöru, þá reyni ég að gæta að hún sé ekki flutt um langa leið til neytanda. Varðandi fatnað, þá versla ég mikið notaðan fatnað og reyni frekar að fjárfesta í íslenskri hönnun. Þegar kemur að gjöfum, þá slá heima­tilbúnar gjafir alltaf í gegn. Til dæmis gott granóla eða sultur. Gefðu eitthvað sem kemur frá hjartanu. Gjafabréf í ýmiskonar upplifanir eru einnig sniðugar.

Elín Björk er úti­vist­ar­kona.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Ég á afar erfitt með að draga úr kaupum á vörum tengdum útivist og hreyfingu en reyni þá frekar að finna notaðan útivistar­fatnað og því tengt á sölusíðum eða í Extra­loppunni. Oft heldur fólk að flíkin sé ónýt þegar hún hættir að vera vatnsheld og losar sig við hana. Það eina sem þarf að gera er að vatns­verja hana upp á nýtt og hún gengur í endurnýjun lífdaga.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já, ég myndi segja það. Ég er löngu hætt að nota smjör­pappír, plast­filmu og poka. Núna nota ég fjölnota bakstur­mottu og fjölnota frysti- og geymslu­ílát og svo rúllar fjöl­skyldan um á rafmagns­bílum.

Annað sem þú vilt taka fram?

Ég get gefið gott ráð varðandi frystingu á mat. Frysti­skápar- og kistur eiga það til að verða einskonar svarthol sem hlutir gleymast í. Það er gott að halda skjal utan um hvað er í kistunni og taka það upp sem er orðið elst. Ef þú ætlar að prófa þetta, er gott að taka allt upp úr, skrifa niður viðkomandi matvöru og dagsetningu.

Ellu granóla

  • 125 g haframjöl
  • 100 g gróft kókosmjöl
  • 100 g hnetur t.d möndlur, pekan eða hesli­hnetur í grófum bitum
  • 65 g blönduð fræ t.d graskers, sólblómafræ eða hörfræ
  • 1 dl rúsínur, döðlur, epli, apríkósur, trönuber eða aðrir smátt skornir, þurrkaðir ávextir
  • 1 ½ tsk kanill
  • 2 msk kókosolía (má vera sólblóma eða grænmetis­olía)
  • 125 g hlynsíróp eða sykur­laust síróp

Aðferð

Hitið ofninn í 170° gráður, undir og yfirhiti. Blandið öllum þurrefnum saman í stóra skál. Hitið kókos­olíuna í vatni þannig að hún verði fljótandi. Setjið síróp og kókosolíu út í blönduna og hrærið vel saman. Hellið á fjölnota sílikon mottu, dreifið vel úr og bakið í miðjum ofni í 20-25 mínútur. Gott að taka út þegar tíminn er hálfnaður og hræra upp í blöndunni. Takið úr ofninum, hrærið upp í blöndunni og látið kólna á mottunni. Setjið í loftþétt ílát og geymið á þurrum og dimmum stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning